Fara í efni

Námskeið í frisbígolfi

12.06.2026
Frisbígolf fyrir alla fjölskylduna á Hafdísarvelli
Deildu

Kormákur Elí Daníelsson mun bjóða upp á námskeið fyrir alla fjölskylduna í frisbígolfi í sumar en á Hólmavík er Hafdísarvöllur sem er frábær frisbígolfvöllur við tjaldsvæðið. 


Námskeiðstímar verða kl. 17:00 dagana 16. og 18. Júní, 7. og 9. Júlí, 14. og 16. Júlí, 28. og 30. Júlí.  Mæting er við innra tjaldsvæðið og diskar á staðnum en einnig má koma með eigin diska. Ókeypis er á námskeiðið sem er hluti af starfi vinnuskóla Strandabyggðar. Senda má skráningu eða skilaboð á Kormák á messenger

Til baka í yfirlit