Fara í efni

Móttaka dýraleifa

11.02.2026
Tekið er á móti dýraleifum við urðunarstað í landi Skeljavíkur.
Deildu

Búið er að koma fyrir íláti á urðunarstað Sorpsamlags Strandasýslu ehf í landi Skeljavíkur og geta bændur komið dýraleifum þar fyrir sem fer í viðeigandi meðhöndlun. Bændur eru beðnir um að tilkynna til Sorpsamlags Strandasýslu ehf þegar komið er með dýraleifar í ílátið.

Samkvæmt gjaldskrá um sorphirðu og sorpeyðingu í Strandabyggð verða dýraleifar sóttar heim að bæjum á vorin og haustin á auglýstum dögum. Það verður tilkynnt á heimasíðu sveitarfélagsins þegar að þvi kemur. 

Til baka í yfirlit