Fara í efni

Menningarverðlaun Strandabyggðar veitt við hátíðlega athöfn á 17 júní

18.06.2026
Hátíðarhöld 17 júní voru á vegum Geislans og fór fram í Íþróttamiðstöð Strandabyggðar.
Anita Rós Kolbeins Kjartansdóttir tók við menningarverðlaunum fyrir hönd Andra Freys Arnarssonar
Deildu

Menningarverðlaun Strandabyggðar 2026 voru veitt við hátíðlega athöfn á 17 júní hátíðarhöldum UMF Geislans í Íþróttamiðstöð Strandabyggðar. 

Tómstunda-, íþrótta- og menningarnefnd Strandabyggðar veitir menningarverðlaun að fengnum tilnefningum. Verðlaunin eru veitt fyrir eftirtektarvert framtak á sviði lista og menningar á liðnu ári og er markmið að efla menningar og listastarf í Strandabyggð. Nefndinni er einnig heimilt að veita sérstakar viðurkenningar vegna menningar- og samfélagsmála. 

Menningarverðlaun Strandabyggðar 2026 hlaut Andri Freyr Arnarsson fyrir metnaðarfullt menningarstarf í sveitarfélaginu. Andri Freyr hefur verið burðarás í menningarlífi á Hólmavík og lagt fram ómetanlegt framlag til viðburðarhalds og menningarstarfa í sveitarfélaginu. Andri hefur ekki einungis komið að skipulagningu fjölbreyttra viðburða, heldur einnig verið ötull stuðningsmaður þeirra sem starfa að menningarverkefnum. Framlag hans einkennist af metnaði, jákvæðni og einlægum vilja til að efla samfélagið. Hann hefur sýnt í verki mikilvægi samvinnu og hvatt aðra til þátttöku sköpunar, sem hefur haft sýnileg áhrif á menningarlíf svæðisins. 

 

Ungmennafélagið Geislinn bauð upp á hátíðardagskrá í Íþróttamiðstöð Strandabyggðar þar sem hátíðarvarningur var til sölu og hoppukastalar fyrir börnin. Skrúðganga fór frá Íþróttamiðstöðinni og endaði á sama stað þar sem Fjallkona fór með ávarp og menningarverðlaun Strandabyggðar veitt. Fjallkona í Strandabyggð í ár er Þórey Hekla Ægisdóttir. Sauðfjársetur á Ströndum bauð upp á glæsilegt kökuhlaðborð á Sævangi og var þar vel mætt. 

 

Til baka í yfirlit