Fara í efni

Menningarverðlaun Strandabyggðar 2026

13.04.2026
Opið fyrir tilnefningar Menningarverðlauna Strandabyggðar 2026
Verðlaunahafar Lóunnar 2025
Deildu

Tómstunda-, íþrótta- og menningarmálanefnd Strandabyggðar auglýsir eftir tilnefningum til Menningarverðlauna Strandabyggðar.
 

Í ár verður Lóan, menningarverðlaun Strandabyggðar, veitt í sautjánda skiptið. Verðlaunin eru veitt árlega til einstaklings, félags, stofnunar, fyrirtækis eða hóps fyrir eftirtektarvert framtak á sviði lista og menningar í sveitarfélaginu á liðnu ári ásamt því að oft eru veitt hvatningarverðlaun til frekari starfa í menningarmálum.

Öflugt lista og menningarstarf er verðmætt öllum samfélögum en ekki síst litlum sveitarfélögum á borð við Strandabyggð og því er dýrmætt að verðlauna það sem vel er gert.
 

Tilnefningum ásamt rökstuðningi, má skila á skrifstofu Strandabyggðar eða á netfangið strandabyggd@strandabyggd.is til miðnættis sunnudaginn 3. maí.


Tómstunda-, íþrótta- og menningarnefnd skipar dómnefnd sem velur úr innsendum tillögum.

Til baka í yfirlit