Fara í efni

Ljósmyndataka

21.11.2011
Á morgun, þriðjudaginn 22. nóvember, kemur hann Bjarni Jónsson ljósmyndari frá Mynd - Ljósmyndastofu og tekur myndir af nemendum og starfsfólki í Grunnskólanum á Hólmavík. Sú nýbrey...
Deildu

Á morgun, þriðjudaginn 22. nóvember, kemur hann Bjarni Jónsson ljósmyndari frá Mynd - Ljósmyndastofu og tekur myndir af nemendum og starfsfólki í Grunnskólanum á Hólmavík. Sú nýbreytni verður á að nú myndar hann hópmyndir af öllum deildum og tekur einstaklingsmyndiraf öllum í viðkomandi deildum. Þegarþessu er lokið fara viðkomandi myndir inn á vef ljósmyndastofunnar, meðaðgangslykli skólans, þar getur fólk skoðað, valið og pantað. Hverjum og einumer síðan frjálst að kaupa eftir hentugleik. Engin greiðsla fer fram áður og engininnheimta á sér stað í skólanum, eingöngu um leið og pantað er á vefnum. Hópmyndin kostar það sama og undanfarin ár, kr:2500.- hún er í stærðinni 20x25cm með nöfnum allra sem á myndinni eru. Algengasta myndapöntun er sú sama og var í fyrra ogkostar það sama núna kr: 2000.- í henni er innifalið eftirfarandi 1. mynd13x18cm, 1.mynd 9x12cm og síðan fjórar passamyndir. Vinsamlegast athugið að vefurinn er ljósmyndavefur ogöllum sem hafa aðgangsorð skólans opinn. Eftir myndatökuna tekur við vinnsla á myndunum, hún geturtekið tvær vikur, lykill vegna skólans verður sendur öllum þegar myndirnar erutilbúnar á vefnum.

Til baka í yfirlit