Í síðustu viku voru starfsmenn Áhaldahúss að keyra út fötum undir lífúrgang. Það verður byrjað að safna lífúrgangi í vikunni 19-23 janúar.
ATH eingöngu er sóttur lífúrgangur í þéttbýli.
Þriðjudaginn 20. janúar verður sóttur lífúrgangur í Lækjartún, Vesturtún, Miðtún, Austurtún, Höfðatún og Víkurtún.
Miðvikudaginn 21. janúar verður sóttur lífúrgangur á Vitabraut, Skólabraut og Hafnarbraut að höfninni.
Fimmtudag 22. janúar verður sóttur lífúrgangur á Hafnarbraut innan hafnarinnar, Kópnesbraut, Brunngötu, Brekkugötu, Bröttugötu, Borgabraut og Höfðagötu.
Íbúar geta þá sett lífúrgangsföturnar sínar fyrir utan hús, að gangstétt, og föturnar verða tæmdar.
Framvegis verður sótt vikulega í götur samkvæmt eftirfarandi skipulagi:
Mánudagar: Lækjartún, Vesturtún og Miðtún
Þriðjudagar: Austurtún, Höfðatún og Víkurtún
Miðvikudagar: Vitabraut, Skólabraut og Hafnarbraut að höfninni.
Fimmtudagar: Hafnarbraut innan hafnarinnar, Kópnesbraut, Brunngata, Brekkugata, Brattagata, Borgabraut og Höfðagata.
Sé óskað eftir fleiri lífúrgangsfötum þá má hafa samband við skrifstofu Strandabyggðar S: 451-3510 eða í tölvupósti á strandabyggd@strandabyggd.is eða við starfsmenn áhaldahús í síma 8353396 eða í tölvupósti á ahaldahus@strandabyggd.is
Ekki verður tekið gjald fyrir auka lífúrgangsfötur.
Íbúar geta einnig farið sjálfir virka daga á dagvinnutíma í Áhaldahúsið og skilað lífúrgangi eða fengið fleiri fötur.
