Allir íbúar Strandabyggðar sem orðnir eru 18 ára eru beðnir um að svara könnuninni með því að fara inná hana á þessari vefslóð: surveymonkey.com/s/vefkonnun og svara henni, það tekur ekki meira en 3-4 mínútur. Einnig eru lesendur hvattir til að benda öðrum íbúum sveitarfélagsins á könnunina. Þeim mun meiri sem þátttakan er þeim mun áreiðanlegri eru niðurstöðurnar og hægt verður að gera sjónarmiðum Strandabyggðar sérstaklega skil.
Tekið skal skýrt fram að svör eru ekki persónugreinanleg og niðurstöður ekki settar fram á þeim grunni.