Fara í efni

Kjörskrá og kjörfundur vegna sveitarstjórnarkosninga 16. maí 2026

14.04.2026
Kjörskrá liggur frammi til kynningar á skrifstofu Strandabyggðar á opnunartíma milli kl. 10 og 14 að Hafnarbraut 25 fram að kjördegi.
Deildu

Kjörskrá liggur frammi til kynningar á skrifstofu Strandabyggðar á opnunartíma milli kl. 10 og 14 að Hafnarbraut 25 fram að kjördegi. Einnig getur fólk farið inn á slóðina http://www.kosning.is til að kynna sér hvar það er skráð. 

Kjörfundur vegna kosninga til sveitarstjórnar

Ein kjördeild verður í Strandabyggð og er kjörstaður í Hnyðju, Höfðagötu 3 Hólmavík. Kjörfundur hefst kl. 09:00 laugardaginn 16. maí 2026 en kjörstaður verður opinn frá kl. 10:00 -17:00. Sbr. 1. mgr. 80 gr. laga nr. 112/2021 um kosningar.

Kosning utan kjörstaðar

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hefst 17.apríl og er staðsett á skrifstofu Sýslumanns Vestfjarða að Hafnarbraut 25. Opið er mánudaga til fimmtudaga kl. 9.00-13.00 og föstudaga kl. 09:00-12:00 og eru kjósendur beðnir um að hafa með sér skilríki til auðkenningar sjá neðst á auglýsingunni: 

Kjörklefi fyrir fólk með skerta hreyfigetu er staðsettur á fyrstu hæð og inngangur er hægra megin. Ath! Að tilkynna þarf í síma 458-2400 sé þess óskað að kjósa í kjörklefa á 1. hæð. 

Skv. 69 gr. laga um kosningar nr. 112/2021 kemur fram að atkvæðagreiðsla geti farið fram á eftirtöldum stöðum:

„Á heilbrigðis- og öldrunarstofnunum, stofnunum fyrir fatlað fólk og í fangelsum fyrir kjósendur sem dveljast þar.“

„Í heimahúsi ef kjósandi getur ekki sótt kjörfund á kjördegi vegna sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar nema hann eigi kost á að greiða atkvæði á stofnun skv. 3. tölulið. Ósk um að greiða atkvæði í heimahúsi skal vera skrifleg og studd vottorði lögráða manns um hagi kjósandans og hafa borist hlutaðeigandi kjörstjóra eigi síðar en kl. 10 tveimur dögum fyrir kjördag.“

Sérstök athygli er vakin á 1. mgr. 74 gr. laga nr. 112/2021  um kosningar:
,,Kjósandi sem greiða vill atkvæði utan kjörfundar skal gera kjörstjóra grein fyrir sér með því að framvísa persónuskilríkjum með nafni, kennitölu og mynd, svo sem vegabréfi, ökuskírteini eða nafnskírteini, eða á annan fullnægjandi hátt að mati kjörstjóra. Kjörstjóri skal merkja í kjörskrá hverjir greiða atkvæði hjá honum, sbr. 1. mgr. 77. gr.".


Oddviti kjörstjórnar Strandabyggðar,
Bryndís Sveinsdóttir

 

Framboðslistar í Strandabyggð

Í samræmi við 47. gr. laga um kosningar nr. 112/2021 tilkynnist hér með að neðangreindir framboðslistar verða í kjöri til sveitarstjórnar Strandabyggðar við sveitarstjórnarkosningarnar þann 16. maí 2026. 

 

 

Framsókn og óháðir með listabókstafinn-B

 
    
 nafnheimilisfangstaða

1

Sigurbjörn Rafn ÚlfarssonLækjartún 9framkvæmdastjóri

2

Kristín Anna OddsdóttirAusturtún 5grunnskólakennari

3

Valgeir Örn KristjánssonKópnesbraut 7húsasmiður

4

Ragnheiður IngimundardóttirHöfðatún 1fyrrv. verslunarmaður

5

Röfn FriðriksdóttirHafnarbraut 17fótaaðgerðarfræðingur

6

Silja Dagrún JúlíusdóttirHeydalsá 1starfsmaður íþróttamiðstöðvar

7

Halldór Jónsson Austurtún 16sjómaður

8

Andri Hrafn ÁsgeirssonAusturtún 5verkamaður

9

Árný Helga BirkisdóttirTröllatunganemandi

10

Sigríður Drífa ÞórólfsdóttirTröllatungabúfræðingur
    

Vegvísir með listabókstafinn-G

  
    
 nafnheimilisfangstaða

1

Hrafnhildur ÞorsteinsdóttirMiðtún 7deildarstjóri stoðþjónustu

2

Jón Örn HaraldssonBorgabraut 9lögreglumaður/sjúkraflutningamaður

3

Kjartan JónssonSkólabraut 18starfsmaður Orkubús Vestfjarða

4

Laufey Heiða ReynisdóttirMiðdalsgröfháskólanemi

5

Andri Freyr ArnarssonBrunngata 5markaðs- og kynningarstjóri

6

Anna Karin Amin KolbeinsSkólabraut 18háskólanemi

7

Jóhann Lárus JónssonVesturtún 7vélavörður/húsasmíðameistari

8

Heiðrún Helga HjörleifsdóttirLækjartún 24grunnskólakennari

9

Sigríður GuðmundsdóttirKirkjubólframkvæmdastjóri

10

Pétur MatthíassonLækjartún 17skipstjóri
    

Strandabandalagið með listabókstafinn-T

 
    
 nafnheimilisfangstaða

1

Þorgeir PálssonKópnesbraut 17oddviti/sveitarstjóri

2

Grettir Örn ÁsmundssonSkólabraut 16byggingarfulltrúi

3

Marta SigvaldadóttirStaður m. Hofstöðumbóndi

4

Alexsandra Pilugiana Hafnarbraut 37barþjónn/beitningakona

5

Þórdís KarlsdóttirSmáhamrar 1dýralæknir

6

Gústaf Hrannar MagnússonHafnarbraut 17starfsmaður íþróttamiðstöðvar

7

Sigurlaug StefánsdóttirVíkurtúni 3leikskólastarfsmaður

8

Indriði AðalsteinssonSkjaldfönnbóndi/hagyrðingur

9

Ásmundur VermundssonSkólabraut 16húsasmíðameistari

10

Guðmundur Viktor GústafssonVesturtún 1útgerðarmaður
Til baka í yfirlit