Kjörskrá liggur frammi til kynningar á skrifstofu Strandabyggðar á opnunartíma milli kl. 10 og 14 að Hafnarbraut 25 fram að kjördegi. Einnig getur fólk farið inn á slóðina http://www.kosning.is til að kynna sér hvar það er skráð.
Kjörfundur vegna kosninga til þjóðaratkvæðagreiðslu
Ein kjördeild verður í Strandabyggð og er kjörstaður í Hnyðju, Höfðagötu 3 Hólmavík. Kjörfundur hefst kl. 09:00 laugardaginn 29. ágúst 2026 en kjörstaður verður opinn frá kl. 10:00 -17:00. Sbr. 1. mgr. 80 gr. laga nr. 112/2021 um kosningar.
Kosning utan kjörstaðar
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar er hafin og er staðsett á skrifstofu Sýslumanns Vestfjarða að Hafnarbraut 25. Opið er mánudaga til fimmtudaga kl. 9.00-13.00 og föstudaga kl. 09:00-12:00 og eru kjósendur beðnir um að hafa með sér skilríki til auðkenningar sjá neðst á auglýsingunni:
Kjörklefi fyrir fólk með skerta hreyfigetu er staðsettur á fyrstu hæð og inngangur er hægra megin. Ath! Að tilkynna þarf í síma 458-2400 sé þess óskað að kjósa í kjörklefa á 1. hæð.
Skv. 69 gr. laga um kosningar nr. 112/2021 kemur fram að atkvæðagreiðsla geti farið fram á eftirtöldum stöðum:
„Á heilbrigðis- og öldrunarstofnunum, stofnunum fyrir fatlað fólk og í fangelsum fyrir kjósendur sem dveljast þar.“
„Í heimahúsi ef kjósandi getur ekki sótt kjörfund á kjördegi vegna sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar nema hann eigi kost á að greiða atkvæði á stofnun skv. 3. tölulið. Ósk um að greiða atkvæði í heimahúsi skal vera skrifleg og studd vottorði lögráða manns um hagi kjósandans og hafa borist hlutaðeigandi kjörstjóra eigi síðar en kl. 10 tveimur dögum fyrir kjördag.“
Sérstök athygli er vakin á 1. mgr. 74 gr. laga nr. 112/2021 um kosningar:
,,Kjósandi sem greiða vill atkvæði utan kjörfundar skal gera kjörstjóra grein fyrir sér með því að framvísa persónuskilríkjum með nafni, kennitölu og mynd, svo sem vegabréfi, ökuskírteini eða nafnskírteini, eða á annan fullnægjandi hátt að mati kjörstjóra. Kjörstjóri skal merkja í kjörskrá hverjir greiða atkvæði hjá honum, sbr. 1. mgr. 77. gr.".
f.h. Kjörstjórnar Strandabyggðar,
Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir
