Fara í efni

Karnival

27.06.2017
Hápunktur Hamingjudaga í ár verður án efa karnival á laugardeginum.
Deildu
Hápunktur Hamingjudaga í ár verður án efa karnival á laugardeginum.

BMX bræður mæta á svæðið kl 11:30 og leyfa gestum og gangandi að prufa hjólin sín og reyna við hjólaþrautabraut. Stórfengleg hjólasýning þeirra hefst svo stundvíslega klukkan 12.

Klukkan 13 býður Sparisjóðurinn upp á ljúffenga kjötsúpu og fleiri opna híbýli sín; svo sem Viðeyjarhús, nýbygging leikskólans og smáhýsin á Galdratúninu svo eitthvað sé nefnt. Á sama tíma verður viðgerðarhlé rallýbíla á planinu við Félagsheimilið.

Hoppukastalar verða einnig við Galrdratúnið og víkingar sýna bardagalistir sínar og handverk. Hamingjumarkaður verður í gangi í Hnyðju og þar verða sömuleiðis opnar sýningar.

Klukkan 14 kemur Húlladúllan fram og sýnir ýmsar listir með húllahringi. Eftir sýninguna kennir hún gestum og gangandi hvernig best sé að fara að. Að svo búnu verður hópzumba á túninu en þá geta allir tekið sporið og dansað við skemmtilega tónlist. Leikfélagið mætir á svæðið í líki trúða og annarra furðuvera, hægt verður að skoða og setjast upp í veghefil sem og að setjast á bak hesti.

Gleðin nær hámarki þegar hamingjuhlauparar koma í mark við fögnuð viðstaddra og allir gæða sér saman á glæsilegum hnallþórum við undirleik trúbadorsins Gísla Rúnars.

Botninn er svo sleginn úr karnivalinu með verðlaunaafhendingu í Hamingjurallýinu en eftir það ganga allir fylktu liði í Kirkjuhvamminn að horfa á Leikhópinn Lottu eða upp í nýmálað Félagsheimili að horfa á heimildarmynd um hamingjuna.

12       Að vera eða ekki vera hamingjusamur. Fyrirlestur með Ingrid KuhlmanFélagsheimili
12BMX brósPlan við Hólmadrang
13Viðgerðarhlé í rallýPlan við Félagsheimili
13-14Kjötsúpa í boði Sparisjóðs StrandamannaSparisjóðurinn
13-15Opin hús í miðbæNánar auglýst síðar
13-17HoppukastalarGaldratún
13-17Vikingafélagið VíðförullGaldratún
13-17HamingjumarkaðurHnyðja
14HúlladúllaGaldratún
15Zumba á GaldratúniGaldratún
15-17Trúðar og önnur furðuverkGaldratún
15-17Strandahestar og teymingarGaldratún
15-17Veghefill frá VegagerðinniGaldratún
15:30Hamingjuhlauparar mætaGaldratún
15:30HnallþóruhlaðborðGaldratún
15:30Trúbadorinn Gísli RúnarGaldratún
16:30Verðlaunaafhending í HólmavíkurrallýGaldratún
17Leitin að Hamingjunni                        
Heimildarmynd eftir Ingrid Kuhlman
Félagsheimili
17Leikhópurinn Lotta - Ljóti andarunginnKirkjuhvammur
Til baka í yfirlit