Íþróttamaður Strandabyggðar er útnefndur af tómstunda-, íþrótta- og menningarnefnd.
Verðlaunin voru veitt á danssýningu leik- og grunnskólans á Hólmavík.
Íþróttamaður Strandabyggðar 2025 er Benedikt Gunnar Jónsson vegna framúrskarandi árangurs í kúluvarpi.
Benedikt setti fjögur Íslandsmet árið 2025 í kúluvarpi og hefur hlotið þátttökurétt á EM U18 sumar 2026. Hann var í fyrsta sæti í RIG U18, Íslandsmeistari U18 bæði inni og úti, var í fyrsta sæti á Gautaborgarleikunum í Svíþjóð sumarið 2025 og á lengsta kastið norðurlöndunum undir 18 ára.
Hvatningarverðlaun Strandabyggðar eru veitt til barna á aldrinum 12 til 15 ára og er einnig útnefnt af tómstunda-, íþrótta- og menningarnefnd.
Hvatningarverðlaun 2024 hlaut Birna Dröfn Vignisdóttir.
Birna Dröfn ætfir skíðagöngu hjá Skíðafélagi Strandamanna og hefur náð þar góðum árangri. Hún keppti í 15-16 keppnum á bikarmótum Skíðasambands Íslands á gönguskíðum og vann til verðlauna á öllum mótunum. Birna Dröfn var í fyrsta sæti í 10 km kvk í Strandagöngunni 2025 og var í öðru sæti í skíðaskotfimimóti Skíðafélags Strandamanna í sínum aldursflokki. Birna Dröfn er jákvæð og dugleg að hvetja aðra og óskar keppinautum sínum til hamingju þegar komið er í mark. Birna Dröfn er dugleg að æfa sig og stefnir langt í sinni grein.
Við óskum Benedikt Gunnari og Birnu Dröfn innilegra hamingjuóska.
