Fara í efni

Innviðauppbygging í Strandabyggð

21.02.2026
Pistill oddvita um uppbyggingu innviða í Strandabyggð. Brandskjól.
Deildu

Kæru íbúar Strandabyggðar,

Það er rétt að upplýsa um þá miklu innviðauppbyggingu sem á sér nú stað í Strandabyggð.   Öll vitum við um þær miklu endurbætur sem átt hafa sér stað í grunnskólanum frá haustdögum 2022 og svo endurgerð leikskólalóðarinnar sl sumar.  Nú er unnið markvist að uppbyggingu á fleiri sviðum samfélagsins og má þar nefna uppbyggingu íbúðahverfis, fráveitu og vatnsveitu.  Framundan eru því fleiri pistlar af þessu tagi, en skoðum fyrst Brandskjól, framtíðar íbúðasvæði Hólmavíkur.

Á nýju aðalskipulagi er gert ráð fyrir um 30 íbúða hverfi í Brandskjólum. Eftirspurn eftir húsnæði á Hólmavík er mikil, en framboð lítið.  Húsnæðisskortur stendur okkur fyrir þrifum.  Í Brandskjólum er einnig gert ráð fyrir þjónustukjarna fyrir aldraða, sem í framtíðinni gæfi eldri íbúum færi á að minnka við sig, flytja úr eigin húsnæði í hentugar íbúðir í þjónustukjarna fyrir aldraða.  Og staðsetningin er ekki tilviljun, því íþróttamiðstöðin, sundlaugin, félagsheimilið og verslunin eru í göngufæri.

Staðan í uppbyggingu Brandskjóla er nú þessi.

  • Hönnun gatna, fráveitu og vatnsveitu er langt komin og bráðum verður hægt að bjóða út gatnagerð í fyrsta hluta hverfisins
  • Hönnun lýsingar, og heimtauga er einnig komin af stað
  • Verið er að gera þrívíddarmynd af hverfinu sem kynnt verður fyrir íbúum síðar.

Tekin var sú ákvörðun að hanna allt hverfið, en að byrja síðan gatnaframkvæmdir á fyrsta verkþætti, sem næði aðeins yfir neðsta hluta hverfisins. Þar má gera ráð fyrir að rísi raðhús á vegum Brákar, og verða þar fimm, sextíu fermetra íbúðir.  Þær eru hugsaðar fyrir ungt fólk og pör, sem t.d. væru að hefja búskap.  Á umræðustigi eru amk tvær aðrar húsbyggingar í neðsta hluta hverfisins.

Brandskjól er glæsilegt og metnaðarfullt hverfi, sem mun blandast fallegri náttúru.  Verkefnið er hins vegar kostnaðarsamt og viðbúð að framkvæmdir við hverfið nái fram til ársins 2027 amk.  Með tilkomu þessa hverfis, getum við tekið við nýju fólki, tryggt framboð lóða og íbúða, sem ætti t.d. að hjálpa okkur að manna lykilstöður í samfélaginu.  Þarna er einfaldlega framtíð Strandabyggðar í húfi. Við viljum og þurfum að stækka og eflast. Við mótum framtíðina núna!

Áfram Strandabyggð!

 

 

Til baka í yfirlit