Fara í efni

Ílát undir lífúrgang fyrir heimili

17.02.2026
Heimili geta fengið fleiri en eina fötu undir lífúrgang.
Deildu

Heimili geta fengið fleiri en eina fötu undir lífúrgang. Hægt er að nálgast fötur á skrifstofu Strandabyggðar að Hafnarbraut 25 eða í Áhaldahúsinu að Skeiði 7. 

Ekki er tekið auka gjald fyrir fleiri en eina fötu undir lífúrgang, heimili greiða eitt gjald fyrir lífúrgangs losun samkvæmt gjaldskrá sem er innheimt með fasteignagjöldum. 

Ef aðrar viðurkenndar leiðir eru til staðar við förgun lífúrgangs, eins og molta eða moltuvél, þá er hægt að sækja um niðurfellingu á lífúrgangsgjaldi á skristofu Strandabyggðar í s. 451-3510 eða á strandabyggd@strandabyggd.is

Lífúrgangur í þéttbýli er losaður á eftirtöldum stöðum á eftirtöldum dögum:
Mánudagar: Lækjartún, Vesturtún og Miðtún
Þriðjudagar: Austurtún, Höfðatún og Víkurtún
Miðvikudagar: Vitabraut, Skólabraut og Hafnarbraut að höfninni.
Fimmtudagar: Hafnarbraut innan hafnarinnar, Kópnesbraut, Brunngata, Brekkugata, Brattagata, Borgabraut og Höfðagata.

Fötur með plastpoka eða niðurbrjótanlega poka undir lífúrgang eru ekki losaðar. Slíkir pokar mega ekki fara í jarðgerðarvélina.

Gott er að setja grjót eða annað þungt ofan á föturnar þegar þær eru settar út, ef það skyldi hvessa svo þær fjúki ekki. 
 

Til baka í yfirlit