Fara í efni

Hreinsunardagur

12.06.2013
Laugardaginn15. júní verður haldinn hreinsunardagur á Hólmavík.  Þá er kjörið tækifæri fyrir íbúa kauptúnsinsað hreinsa í kringum hús sín og á opnum svæðum í hverfum sínum ...
Deildu

Laugardaginn15. júní verður haldinn hreinsunardagur á Hólmavík.  Þá er kjörið tækifæri fyrir íbúa kauptúnsinsað hreinsa í kringum hús sín og á opnum svæðum í hverfum sínum og sjá til þessað bærinn verði skínandi hreinn og fínn. 

 Forsvarsmenn fyrirtækja í bænum eru ennfremurhvattir til að hreinsa og fegra umhverfi sitt eins og mögulegt er. 

Tökum á mótisumri  með hreinum og snyrtilegum bæ.

 

StarfsmennÁhaldahúss munu fara um bæinn á laugardaginn og hirða garðaúrgang og rusl áeftirfarandi tímum:

-14:00Bláa hverfið

-15:00Appelsínugula hverfið

-16:00Rauða hverfið

Til baka í yfirlit