Fara í efni

Hótel á Hólmavík

10.04.2026
Framtíð ferðaþjónustu á Vestfjörðum tekur á sig mynd á Hólmavík.
Deildu

Kæru íbúar Strandabyggðar,

Strandabyggð og Hótel Strandir ehf hafa undirritað lóðarleigusamning vegna uppbyggingar hótels á Hólmavík. Í tilkynningu sem aðstandendur Hótels Stranda hafa samið, kemur fram að samnningurinn markar upphafið að einu stærsta ferðaþjónustuverkefni sem ráðist hefur verið í á Vestfjörðum og mun styrkja Hólmavík sem áfangastað og tengipunkt í vaxandi ferðamannastraumi um svæðið.

Hótel Strandir verður fjögurra stjörnu lífstílshótel með 62 herbergjum, veitingaaðstöðu, heilsulind og þjónustu fyrir bæði ferðamenn og heimamenn. Hótelbyggingin verður staðsett á svokölluðum Tjaldsvæðisreit við Jakobínutún með óhindrað útsýni yfir Steingrímsfjörð. 

Áætlanir gera ráð fyrir að hótelið opni á árinu 2028.

Markmið verkefnisins er að skapa meira en hefðbundna gistiþjónustu. Byggja upp heildstæða upplifun sem tengir saman náttúru, menningu og sérstöðu svæðisins í nánu samstarfi við nærsamfélagið. 

„Þessi samningur er mikilvægt skref í að efla atvinnulíf og skapa bæði ný störf og ný tækifæri á svæðinu. Uppbygging sem þessi hefur jákvæð áhrif á samfélagið í heild og styrkir Hólmavík sem áfangastað,“ segir Þorgeir Pálsson, sveitarstjóri Strandabyggðar.

Eigendur Hótel Stranda, Friðjón Sigurðarson, Karl Sigfússon og Erla Ósk Ásgeirsdóttir leggja áherslu á mikilvægi verkefnisins fyrir svæðið:

„Við sjáum mikil tækifæri í ferðaþjónustu á Vestfjörðum og teljum svæðið eiga mikið inni. Við teljum að með nýju gistiframboði muni Hótel Strandir geta leikið lykilhlutverk í frekari uppbyggingu og þróun ferðaþjónustu í landshlutanum öllum.“ segir Friðjón

„Strandir eru þekktar fyrir ríka þjóðtrú og galdrahefð sem gefur svæðinu einstakan karakter og upplifunargildi. Markmiðið er að skapa upplifun sem byggir á sérstöðu svæðisins, kyrrðinni, náttúrunni og sterkri tengingu við menningu og samfélag. Þetta er fjárfesting í framtíð svæðisins.“ segir Erla Ósk

Hönnun hótelsins mun endurspegla staðaranda Stranda með skírskotun í sögulegan menningararf svæðisins, þar sem þjóðtrú, sagnir og galdrahefð fá að njóta sín í nútímalegri og heillandi framsetningu. Byggingin verður jafnframt hönnuð með áherslu á sjálfbærni, þar sem sérstaklega verður hugað að orkunotkun, efnisvali og kolefnisspori.

Til baka í yfirlit