Vitað er að holl næring skiptir miklu máli fyrir árangur ogvellíðan barna og ungmenna í leik og starfi. Mörg börn hafa lítinn tíma til aðborða á morgnana áður en þau fara í skólann, eða eru jafnvel lystarlaus og komaengu niður. Morgunverðurinn er þó almennt talinn til mikilvægustu máltíðadagsins og börn sem ekki nærast vel að morgni dags skortir oft úthald ogeinbeitingu í amstri skóladagsins. Hollt og gott nesti er mikilvægt því flestireru aftur orðnir svangir þegar líður á morguninn.
Í umhverfissáttmála skólans, sem er liður íGrænfánaverkefninu, er lögð áhersla á hollt og gott nesti. Mikilvægt er að hafafjölbreytnina í fyrirrúmi og prófa reglulega eitthvað nýtt – gjarnan í samráðivið börnin. Flestur matur er hollur ef gætt er að hæfilegum skammtastærðum,samsetningu máltíða og fjölbreyttu fæðuvali. Öllum nemendum gefst kostur á aðfá léttmjólk að drekka í nestistíma og hafa aðgang að grillum og örbylgjuofni ímatarhléi. Á vef Lýðheilsustöðvar má sjá ýmsar hugmyndir og lesa um þessi mál.
