Kæru íbúar Strandabyggðar,
Samband íslenskra sveitarfélaga, ásamt innviðaráðuneytinu, hefur sett í loftið átak sem miðar að því að styrkja lýðræðið á sveitarstjórnarstigi. Í fyrri hluta átaksins er markmiðið að fjölga þeim einstaklingum sem bjóða sig fram til sveitarstjórna í komandi sveitarstjórnarkosningum. Í seinni hluta átaksins verður áherslan lögð á að hvetja öll til að nýta kosningarétt sinn en sérstök áhersla verður lögð á að auka þátttöku ákveðinna hópa, sem minnstan þátt hafa tekið sl. ár í sveitarstjórnarkosningunum, og fer sá hluti í loftið þegar nær dregur kosningum.
Átakinu er ætlað að efla vitund almennings um mikilvægi sveitarstjórnarstarfs og vekja áhuga nýrra einstaklinga á þátttöku í pólitík á vettvangi sveitarfélaganna. Lögð verður sérstök áhersla á að ná til fjölbreytts hóps fólks, ekki síst þeirra sem hingað til hafa ekki tekið virkan þátt í sveitarstjórnarmálum.
Markmið átaksins eru tvíþætt:
- Hvetja nýtt fólk til þátttöku í stjórnmálum á sveitarstjórnarstigi, með áherslu á að virkja einstaklinga sem hafa ekki áður tekið þátt í framboði eða starfi sveitarstjórna.
- Stuðla að áframhaldandi þátttöku núverandi kjörinna fulltrúa, þannig að þekking og reynsla haldist innan sveitarstjórna og tryggi stöðugleika í stjórnsýslu og ákvarðanatöku.
Frekari upplýsingar má fá hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
