Fara í efni

Grunnskólinn á Hólmavík í Lífshlaupinu.

02.02.2011

Grunnskólinn á Hólmavík er nú skráður í hvatningarleik Lífshlaupsins en Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hefur hvatt alla grunnskóla til þess að taka þátt. Við erum búin að skrá skólann, bekkina og nemendur til leiks og munu nemendur fá kynningu á verkefninu í íþróttum hjá Kolla og hjá umsjónarkennurum sínum.

Hvatningarleikurinn hófst í dag 2. febrúar og stendur til 22. febrúar. Nú geta allir farið inn á www.lifshlaupid.is og skráð stigin sín með því að skrá sig inn undir netfanginu kolliskag@gmail.com og slá inn lykilorðið kolbeinn. Umsjónarkennarar sjá um að setja inn nöfn nemenda sinna og síðan getur hver nemandi skráð hreyfingu sína úr hvaða tölvu sem er með aðstoð kennara eða foreldra.

Lífshlaupið er fræðslu- og hvatningarverkefni ÍSÍ sem höfðar til allra aldurshópa. Landsmenn eru hvattir til þess að huga að sinni daglegri hreyfingu og auka hana eins og kostur er þ.e. í frítíma, heimilisverkum, vinnu, skóla og við val á ferðamáta. Lýðheilsustöð gaf út í fyrsta skipti árið 2008 ítarlegar ráðleggingar um hreyfingu. Börnum og unglingum er ráðlagt að hreyfa sig í minnst 60 mínútur á dag og fullorðnum í minnst 30 mínútur á dag (sjá nánar á þessari síðu til vinstri undir hnappnum Hreyfiráðleggingar).

Deildu


Inn á vef Lífshlaupsins er hægt að velja um þrjár leiðir.

Ef þú ert 16 ára og eldri getur þú tekið þátt í vinnustaðakeppni.Ef þú ert 15 ára og yngri getur þú tekið þátt í hvatningarverkefni fyrir grunnskóla.Allir geta tekið þátt í einstaklingskeppni þar sem þátttakendur geta skráð niður sína daglegu hreyfingu allt árið. 

Þú getur fylgst með fjölda þátttakenda, fjölda liða og með þeim árangri sem þátttakendur ná í hverju sveitarfélagi fyrir sig með því að smella á Staðan vinstra megin á síðu Lífshlaupsins.

 

Skrá má alla hreyfingu niður en hún þarf að ná minnst 30 mínútum samtals hjá fullorðnum og minnst 60 mínútur samtals hjá börnum og unglingum til að fá dag skráðan. Tímanum má skipta upp í nokkur styttri tímabil yfir daginn s.s. 10 til 15 mín í senn. Lífshlaupsárið nær frá upphafsdegi Lífshlaupsins ár hvert að upphafsdegi Lífshlaupsins árið á eftir. Á hverju Lífshlaupsári geta þátttakendur unnið sér inn viðurkenningar í einstaklingskeppninni eftir að þeir ná ákveðnum fjölda daga í hreyfingu, brons (42 dagar), silfur (84 dagar), gull (252 dagar) eða platínumerki (335). Í hvatningarleiknum eru grunnskólanemendur hvattir til þess að ná að hreyfa sig alla daga meðan á leiknum stendur í samræmi við ráðleggingar um hreyfingu. Í vinnustaðakeppninni er hugmyndafræðin þ.e. flokkaskipting og útreikningar þeir sömu og eru í fyrirtækjakeppninni Hjólað í vinnuna. Þar sem fjöldi þátttakenda er deilt með heildarfjölda starfsmanna á vinnustaðnum, nema nú er keppt um fjölda daga og mínútna.

Til baka í yfirlit