Meðfylgjandi mynd er af Má Ólafssyni í gervi einnar kvinnunnar á svæðinu.
Fréttatilkynning frá Góunefndinni.
Góugleði 2012!
05.03.2012
Nú fer hver að verða síðastur að skrá sig á hina mögnuðu Góugleði sem verður haldin í Félagsheimilinu á Hólmavík laugardaginn 10. mars næstkomandi. Skráningar hafa gengið mjö...

Nú fer hver að verða síðastur að skrá sig á hina mögnuðu Góugleði sem verður haldin í Félagsheimilinu á Hólmavík laugardaginn 10. mars næstkomandi. Skráningar hafa gengið mjög vel, en hægt er að koma fleirum að og eru menn hvattir til að skrá sig sem allra fyrst eða í síðasta lagi þriðjudaginn 6. mars. Tekið er á móti skráningum í netföngunum jedvald@simnet.is og smt@snerpa.is. Einnig er hægt að hringja í Jón Eðvald Halldórsson í síma 862-8735 og Sigurð Marinó Þorvaldsson í síma 894-4806. Forsala aðgöngumiða verður miðvikudaginn 7. mars í félagsheimilinu frá kl 17:00 til 19:00 en miðaverð er aðeins kr. 6.500. Hljómsveitin Stuðlabandið heldur síðan uppi fjörinu eftir að borðhaldi lýkur og verður hægt að borga sig sér inná ballið fyrir kr. 2.500.