Fara í efni

Göngum í skólann 3.-10. október

02.10.2012
Hið árlega verkefni Göngum í skólann er haldið í sjöttasinn hér á landi. Eins og undanfarin tvö ár ætlar Grunnskólinn á Hólmavík að taka þáttí verkefninu frá miðvikudeginum ...
Deildu

Hið árlega verkefni Göngum í skólann er haldið í sjöttasinn hér á landi. Eins og undanfarin tvö ár ætlar Grunnskólinn á Hólmavík að taka þáttí verkefninu frá miðvikudeginum 3. október til miðvikudagsins 10. október. Í þetta sinn verður fyrirkomulagið þannig að í stað keppni á milli bekkja verður horft á persónulegan árangur hvers og eins. Nemendur skrá hvort þau hafa gengið og hvað mikið. Í lokin fá þeir þátttakendur viðurkenningu sem hafa staðið sig sérstaklega vel á lokahófi sem haldið er síðasta daginn ásamt sameiginlegri gönguferð. Við vonum að sem flestir taki þátt og að foreldrar hvetji börnin sín til að nota hjólin sín eða ganga ef það er mögulegt. Markmiðið verkefnisins er aðhvetja til aukinnar hreyfingar með því að auka færni barna til að ganga áöruggan hátt í skólann og fræða þau um ávinning reglulegrar hreyfingar.

Til baka í yfirlit