Fara í efni

Góð gjöf frá Landsbanka Íslands

18.10.2016
Landsbankinn hefur fært nokkrum leikskólum og skólum að gjöf notaðan en nýlegan tölvubúnað með innbyggðri myndavél sem notaður verður við talþjálfun fyrir börn og fullorðna í g...
Deildu

Landsbankinn hefur fært nokkrum leikskólum og skólum að gjöf notaðan en nýlegan tölvubúnað með innbyggðri myndavél sem notaður verður við talþjálfun fyrir börn og fullorðna í gegnum fjarbúnað. Leikskólar á sjö stöðum, einn grunnskóli og eitt hjúkrunarheimili fá búnað til þessara nota.

Verkefnið er unnið í samstarfi við ráðgjafa- og hugbúnaðarfyrirtækið Tröppu en talmeinafræðingar á þeirra vegum hafa veitt rúmlega 100 börnum talþjálfun.


Fjórir leikskólar og einn grunnskóli á Vestfjörðum fá búnað og er leikskólinn Lækjarbrekka einn af þeim.

Við færum Landsbanka Íslands okkar bestu þakkir fyrir höfðinglega gjöf og mun hún koma að góðum notum við þjálfun barna í Strandabyggð en Trappa hefur sinnt fjarþjálfun hér undanfarið.



Til baka í yfirlit