Fara í efni

Gestanemendur

07.10.2010
Ákveðið hefur verið að setja viðmiðunarreglur varðandi gestanemendur við Grunnskólann á Hólmavík:Best er, ef hægt er, að óska eftir leyfi fyrir gestanemendur með nokkurra daga fyri...
Deildu

Ákveðið hefur verið að setja viðmiðunarreglur varðandi gestanemendur við Grunnskólann á Hólmavík:

  • Best er, ef hægt er, að óska eftir leyfi fyrir gestanemendur með nokkurra daga fyrirvara.
  • Gestanemendur eru velkomnir til okkar - þó í mesta lagi eina viku í senn.
  • Sótt er um leyfi til skólastjóra, skólastjóri ræðir við umsjónarkennara og aðra kennara sem koma til með að kenna barninu og gefur svar til umsækjenda að því loknu.
  • Gesturinn fylgir bekk en verður að koma með eigið námsefni eða viðfangsefni við hæfi og íþróttaföt eða sundföt fyrir íþróttatíma.
  • Gesturinn fylgir skólareglum.
  • Forráðamenn gestanemenda verða að fylla út eyðublað (smellið hér) ef þeir óska eftir að gestanemandi nýti þjónustu skólans t.d. heimanámstíma, Skólaskjól eða mötuneyti og upplýsa um hver greiðir fyrir þá þjónustu.

Frekari upplýsingar gefa skólastjórnendur í s. 451-3129, 451-3430 eða í gegnum netfangi skolastjorar@holmavik.is

Til baka í yfirlit