Fara í efni

Fyrstu skrefin

30.06.2026
Pistill frá oddvita Strandabyggðar
Myndataka í Strandabyggð. Haust 2025.
Deildu

Nú er liðinn mánuður síðan ný sveitarstjórn tók við og við göngum full þakklætis og bjartsýni inn í þau verkefni sem fram undan eru. Við viljum þakka fyrir þær góðu móttökur og þann stuðning sem við höfum fundið fyrir á fyrsta mánuðinum í starfi. Það er óhætt að segja að verkefnin séu bæði mörg og fjölbreytt. 

Um þessar mundir er verið að ljúka skipan í nefndir, ráð og stjórnir, fara yfir samþykktir sveitarfélagsins og efla þekkingu okkar á regluverki og stjórnsýslu sveitarfélaga og samstarfi innan Fjórðungssambands Vestfirðinga, svo fátt eitt sé nefnt. Samhliða þessu erum við að kynna okkur betur þau fjölmörgu verkefni sem eru í gangi innan sveitarfélagsins, svo hægt sé að halda þeim áfram af festu og farsæld. Stærsta verkefnið þessa dagana er þó ráðning nýs sveitarstjóra. Umsóknir eru nú til úrvinnslu og viðtöl við umsækjendur standa yfir. Við leggjum metnað í að vanda það ferli og munum upplýsa íbúa þegar ráðningu er lokið. 

Við hlökkum til áframhaldandi samstarfs við íbúa, starfsfólk sveitarfélagsins og aðra samstarfsaðila við að þróa og efla Strandabyggð.

 

 

 

 

 

 

Compose

 

 

 

 

Write to Hrafnhildur Þorsteinsdóttir

 


 

Til baka í yfirlit