Fara í efni

Fundur um skátastarf í Hnyðju

07.11.2012
Kynningarfundur um skátastarf verður haldinn í Hnyðju á Hólmavík í dag, miðvikudaginn 7. nóvmeber, kl 18:00. Á fundinn koma fulltrúar frá Bandalagi íslenskra skáta og skátafélaginu...
Deildu
Kynningarfundur um skátastarf verður haldinn í Hnyðju á Hólmavík í dag, miðvikudaginn 7. nóvmeber, kl 18:00. Á fundinn koma fulltrúar frá Bandalagi íslenskra skáta og skátafélaginu Stíganda í Dölunum og kynna skátastarf og skipulag þess. Ef áhugi reynist fyrir því hjá fundarmönnum, verður stofnun skátafélags á Hólmavík tekin fyrir í lok fundar.

Fundurinn er opinn öllum áhugasömum, bæði börnum og fullorðnum. Á fundinum verður börnum boðið að taka þátt í skemmtilegum leik - allir að mæta!
Til baka í yfirlit