Fundargerð nr. 1387 hjá Strandabyggð hefur því miður ekki verið birt á vef sveitarfélagsins vegna tæknilegra örðugleika milli kerfa en verið er að vinna í birtingu. Það á einnig við um fundargerðir Umhverfis- og skipulagsnefndar og Tómstunda-, íþrótta- og menningarnefndar.
Á meðan birtum við þær hér á pdf formi.
Fundargerð sveitarstjórnar nr. 1387
Fundargerð Umhverfis- og skipulagsnefndar 5.2.2026
Fundargerð Tómstunda-, íþrótta- og menningarnefndar 19.1.2026
Við biðjumst velvirðingar á þessari seinkun, en þegar kerfin eru farin að vinna saman þá mun fundargerðin birtast undir Fundargerðir á heimasíðu sveitarfélagsins ásamt fundargögnum.
Hljóðskrá sveitarstjórnarfundar nr. 1387 hefur verið birt og hægt að hlusta hér.