Vikan 3. – 7. september
Mánudagurinn byrjaði á stærðfræði þar sem nemendur unnu aðmarkmiðum vikunnar. Í þriðja og fjórða tíma var íslenska. Þar unnu nemendur aðmarkmiðum sínum. Allir eru búnir að velja sér kjörbók og smásögu. Þær á að lesaheima. Í ensku voru bls. 54-58 lesnar og glósaðar. Í náttúrufræði var fariðyfir kafla 1.2. Nemendur gerðu sjálfspróf 1.2 og 1.3 var unnið í hópum.
Á þriðjudag var samfélagsfræði í fyrstu tveimur tímunum, 9.bekkur er að vinna í efnahagskerfinu. 8. bekkur hefur verið að vinna meðmenningu á Íslandi. Í íslensku eru allir að vinna í Skerpu á sínum hraða ogvinna að markmiðum sínum. Allir eru búnir að velja sér kjörbók/smásögu sem á aðlesa heima og vinna síðan verkefni um hana í kennslustundum. Í ensku var unniðað markmiðum vikunnar og að þýðingu á textanum Jailhouse rock. Í íþróttum varfarið í Rugby og boltaleiki.
Á miðvikudag var stærðfræði og upplýsingamennt fyrstutvo tímana og síðan aftur í síðasta tíma fyrir mat og fyrsta tíma eftir mat.Var bekknum skipt upp í tvo hópa þar sem annar hópurinn vann í upplýsingamennthjá Arnari og hinn hópurinn vann í stærðfræði hjá Ásu. Síðan var skipt í seinnitveimur. Í upplýsingamennt var haldið áfram vinnunni við skipulagsbókina og erþeirri vinnu að verða lokið. Ættu nemendur að fá skipulagsbók afhenta í loknæstu viku. Dagurinn endaði í náttúrufræði þar sem unnið var að sjálfsprófum úrkafla eitt, þeir sem áttu eitthvað eftir kláruðu og síðan var farið yfirsvörin. Tíminn endaði síðan á því að nemendur undirbjuggu sig fyrir næsta tímameð því að lesa kafla 2.
Á fimmtudag var stærðfræði í fyrsta tíma og unnu nemendur aðmarkmiðum sínum. Síðan var tjáning sem Malla sér um og eru nemendur að vinna aðverkefni þar sem þeir munu flytja síðar. Í þriðja og fjórða tíma varsamfélagsfræði þar sem haldið var áfram vinnu við sömu viðfangsefni og áþriðjudeginum. Í síðasta tíma fyrir mat var bekkjarfundur, var talað umvináttu í hennar víðustu mynd. Eftir hádegið var íslenska þar semnemendur unnu að markmiðum sínum og þau enduðu daginn í íþróttum þar semfarið var í boltaleiki.
Á föstudag var íslenska þar sem unnið var að markmiðum íSkerpu og nemendur í 9. bekk völdu sér kjörbók. Í stærðfræði var unnið aðmarkmiðum. Síðustu þrír tímarnir voru danska. Fóru nemendur út í góða veðrið ogskrifuðu hjá sér nafnorð úr umhverfinu. Þegar inn var komið var unnið meðnafnorðin áfram og nemendur æfðu sig í notkun á óákveðnum og ákveðnum greini.
Takk fyrir góða viku og eigið góða helgi.
Kveðja Ása
Vikan 27. – 31. ágúst
Mánudagurinn byrjaði í rólegheitum með 8. bekk. Þau unnu velað markmiðum sínum í þeim fögum sem kennsla var byrjuð í. En í öðrum tímumdunduðum við okkur því við ákváðum að bíða eftir 9. bekk. Síðan var frí hjáþeim frá hádegi á mánudag.
Á þriðjudag kom 9. bekkur aftur eftir Danmerkurferð. Það varmikil gleði og eftirvænting í hópnum. Þau fengu ekki mikinn tíma til að slóraþví vinnan hófst á fullu. Þau unnu vel að markmiðum sínum í íslensku. Í enskuvar þeim skipt í sjö hópa og átti hver hópur að skrifa um einn dag í Danmörkuog lesa það síðan upp í seinni tímanum. Dagurinn endaði síðan í íþróttum þarsem farið var í skotleiki.
Á miðvikudag var stærðfræði og upplýsingamennt fyrstu tvotímana og síðan aftur í síðasta tíma fyrir mat og fyrsta tíma eftir mat. Varbekknum skipt upp í tvo hópa þar sem annar hópurinn vann í upplýsingamennt hjáArnari og hinn hópurinn vann í stærðfræði hjá Ásu. Síðan var skipt í seinnitveimur. Í upplýsingamennt var byrjað að setja upp skipulagsbók sem þau ætla aðbúa sér til sjálf þar sem að ekki var hægt að kaupa meira af Skjatta þar semframleiðandi lætur ekki prenta meira. Í stærðfræði unnu nemendur að markmiðum.Í náttúrufræði sem var síðasti tími dagsins var byrjað á bókinni Maður ognáttúra þar sem fjallað var um efni kafla 1.1 og nemendur unnu sjálfspróf semátti við þann kafla.
Á fimmtudag var stærðfræði í fyrsta tíma og unnu nemendur aðmarkmiðum sínum. Síðan var tjáning sem Malla sér um og eru nemendur að vinna aðverkefni þar sem þeir munu flytja síðar. Í þriðja og fjórða tíma varsamfélagsfræði. Í síðasta tíma fyrir mat var bekkjarfundur, en það er nýtt ístundaskrá og er ætlað sem tími þar sem allskonar mál eru rædd og tilkynningumkomið til nemenda þegar þarf. Eftir hádegið var íslenska og þau enduðu daginn ííþróttum.
Á föstudag var íslenska þar sem unnið var að markmiðum íSkerpu og nemendur í 9. bekk völdu sér kjörbók. Í stærðfræði var unnið aðmarkmiðum. Síðustu þrír tímarnir voru danska. Þar sem nemendur unnu ívinnubókinni og lesin var upp stutt saga sem nemendur áttu að þýða yfir áíslensku. Í lok dagsins var kosið til nemendaráðs.
Takk fyrir góða viku og eigið góða helgi.
Kveðja Ása
21.-24. ágúst
Það var mjög gaman að hitta nemendur aftur eftir sumarfrí ogallir voru kátir og hressir. Vikan var erfið og við vorum frekar fá þar sem að9. bekkur var í Danmörku. Nemendur voru að kynnast kennurum sínum og fá bækur afhentar. Allir voru mjögáhugasamir og voru tilbúnir fyrir vinnuna þannig að þau unnu helling í bókunum.Þessi fyrsta vika gekk vel og skemmtum við okkur mjög vel saman.