Fara í efni

Eldvarnarátak slökkviliðs Strandabyggðar

09.12.2011
Slökkvilið Strandabyggðar vill leggja sitt af mörkum til að aðstoða íbúa Strandabyggðar við að tryggja öryggi heimila og vinnustaða sem best nú þegar jólahátíðin fer í hönd.

Slökkvitækjaþjónustan Aðgát mun bjóða upp á slökkvitækjaþjónustu laugardaginn 10. desember og sunnudaginn 11. desember í slökkvistöðinni á Skeiðinu. Hægt verður að koma með tæki frá kl. 10:00 - 15:00 á laugardaginn og sækja þau aftur á sunnudaginn milli kl. 13:00 - 15:00. Einnig verða til sölu slökkvitæki, reykskynjarar og eldvarnarteppi.
Deildu

Slökkvilið Strandabyggðar mun einnig bjóða eldri borgurum að koma heim til þeirra og skipta um rafhlöður í reykskynjurum, fara með slökkvitæki í yfirhalningu og koma með þau aftur. Þeir sem þess óska geta hringt í síma 893 - 3531.

Slökkvilið Strandabyggðar bendir á að yfirfara þarf handslökkvitæki helst á hverju ári, alls ekki minna en á 2 ára fresti, til að tryggja að það sé i lagi. Fyrirtækjum ber lögum samkvæmt að láta skoða tækin árlega. Einnig viljum við benda á mikilvægi reykskynjara, að prófa ætti þá minsst einu sinni í mánuði og nauðsynlegt er að skipta um rafhlöðurí þeim einu sinni á ári.

Mikilvægt er einnig að eldvarnarteppi séu til á hverju heimili og kaffistou þar sem einhver hitun fer fram, t.d. brauðrist.

Slökkvilið Strandabyggðar óskar Strandamönnum öllum gleðilegra jóla.

Til baka í yfirlit