Fyrsta ferð verður farin miðvikudaginn 6. maí.
Dýraleifar verða eingöngu sóttar á þá bæi sem tilkynna til Sorpsamlags Strandasýslu um að það þurfi að sækja dýrahræ á viðkomandi sveitabæ. Ef engin tilkynning berst fellur ferðin niður þá vikuna.
Hægt er að tilkynna um dýrahræ í síma Sorpsamlags Strandasýslu 893-3531 eða í tölvupósti á sorpsamlag@holmavik.is
Einnig verður áfram hægt að koma með dýraleifar í þar til gert ílát við urðunarstað í landi Skeljavíkur.
