Fara í efni

Dagrún Fanný Liljarsdóttir hefur störf sem sveitarstjóri Strandabyggðar

19.08.2026
Dagrún Fanný Liljarsdóttir tekur nú við starfi sveitarstjóra Strandabyggðar.
Deildu

Ráðningarsamningur var undirritaður í gær, 18. ágúst, af Dagrúnu Fanný og Hrafnhildi Þorsteinsdóttur oddvita Strandabyggðar og við sama tækifæri tók hún við lyklum að skrifstofu sveitarfélagsins. 

Hagvangur annaðist faglegan undirbúning ráðningarferlisins og var unnið út frá ráðleggingum þeirra í gegnum ferlið. Að fenginni ráðgjöf Hagvangs var ákveðið að halda áfram viðræðum við Dagrúnu og er ánægjulegt að niðurstaðan hafi orðið sú að hún tekur nú við starfi sveitarstjóra Strandabyggðar. 

Við bjóðum Dagrúnu Fanný velkomna til starfa og óskum henni velfarnaðar í nýju starfi. 

Til baka í yfirlit