Fara í efni

Dagbók sveitarstjóra

02.11.2026
Október hefur verið bæði annasamur og skemmtilegur. Mánuðurinn gaf mér áfram tækifæri til að kynnast starfsemi sveitarfélagsins betur, hitta fólk úr ólíkum áttum og taka þátt í fjölbreyttum verkefnum. Samhliða daglegri stjórnsýslu hélt áfram vinna við ýmis þróunar- og uppbyggingarverkefni sveitarfélagsins og samstarf við íbúa, stofnanir og fyrirtæki.
Deildu

Október einkenndist af mikilli fundarsetu, bæði innan sveitarfélagsins og á vettvangi sveitarstjórnarmála á landsvísu. Með fundarsetu og þátttöku í ýmsum ráðstefnum og ársfundum á vettvangi sveitarstjórnarmála. Ég sótti meðal annars aðalfund Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum, aðalfund Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga, ársfund Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, Fjármálaráðstefnu sveitarfélaga og Hafnarsambandsþing. Slíkir fundir eru ekki aðeins mikilvægir til að afla þekkingar og fylgjast með þróun sveitarstjórnarmála heldur einnig til að efla tengslanet sveitarfélaganna og eiga samtal við fólk sem stendur frammi fyrir sambærilegum verkefnum og áskorunum og við hér í Strandabyggð.

Ég var þeirrar ánægju aðnjótandi að fá að taka þátt í starfi Grunnskólans á Hólmavík einn dag í mánuðinum þegar starfsfólk skólans fór í endurmenntunarferð. Það var ánægjulegt að geta lagt mitt af mörkum en ekki síður að fá tækifæri til að vera með nemendunum og kynnast daglegu skólastarfi enn betur. Mikilvægt er að starfsfólk fái tækifæri til endurmenntunar og þróunar í starfi og var ánægjulegt að sjá hvað mörg lögðust á eitt til að hjálpa til að láta það ganga upp. Gaman er einnig að segja frá því að nýr skólabíll var tekinn í notkun í mánuðinum. Bíllinn er stærri og betur til þess fallinn að sinna bæði skólaakstri og annarri starfsemi fyrir börn og ungmenni í sveitarfélaginu, þar á meðal hinum ýmsu tómstundarferðum fyrir allan aldur. 

Í mánuðinum fengum við góða heimsókn þegar fulltrúar Vesturbyggðar komu til okkar til að kynna sér starfsemi Sorpsamlagsins. Það var sannarlega ánægjulegt að heyra hversu vel var látið af því starfi sem þar er unnið og þeim árangri sem náðst hefur í sorpmálum. Slíkar heimsóknir minna okkur á að margt gott hefur verið byggt upp hér hjá okkur og að við eigum mikið af þekkingu og reynslu sem aðrir geta lært af.

/cdn/media/ahaldahus.jpg?v=1793630506

Félagslífið í Strandabyggð heldur áfram að vera einstaklega líflegt og víða um sveitarfélagið eru viðburðir, samkomur og fjölbreytt starfsemi sem byggir á þessum magnaða krafti íbúa sem ég er alltaf að dást að. Það er ánægjulegt að finna hversu sterkt samfélagið okkar er og hversu margir leggja sitt af mörkum til að skapa líf og gleði í sveitarfélaginu.

Í október hélt ég einnig fyrsta reglubundna stjórnendafundinn með stjórnendum sveitarfélagsins. Ég er afar þakklát fyrir það fagfólk sem starfar fyrir Strandabyggð og þá þekkingu og reynslu sem býr innan stofnana sveitarfélagsins. Markmið þessara funda er að efla samstarf, upplýsingaflæði og skapa sameiginlega sýn á þau fjölbreyttu verkefni sem við vinnum að. Sveitarstjórnarfundur októbermánaðar var sömuleiðis málefnalegur og góður og þar voru tekin fyrir fjölmörg mikilvæg mál. Í kjölfar fundarins hefur verið unnið að úrvinnslu og eftirfylgni þeirra verkefna sem sveitarstjórn fól stjórnsýslunni að vinna áfram. Þar á meðal var undirritun verksamnings vegna fyrsta áfanga Brandsskóla sem markar mikilvægt skref í framgang þess verkefnis, ásamt fjölda mörgum öðrum mikilvægum málum. Vinna við fjárhagsáætlun er farin af stað enda fylgir það haustinu að fara í slík verkefni sem verður eitt stærsta verkefni næstu vikna. 

/cdn/media/mynd.jpg?v=1793630571

Mánuðurinn endaði líkt og hann hófst á fundarsetu, að þessu sinni á Fjórðungsþingi Vestfirðinga á Patreksfirði. Þar komu saman fulltrúar sveitarfélaga á Vestfjörðum til að ræða sameiginleg hagsmunamál svæðisins. Við vorum góður og samhentur hópur sem fórum þangað fyrir hönd Strandabyggðar og lögðum fram tvær ályktanir sem báðar voru samþykktar á þinginu. Önnur ályktunin sneri að stöðu fjarskiptamála á Vestfjörðum og þeirri brýnu þörf sem er á úrbótum í farsíma- og gagnasambandi. Þar var sérstaklega bent á mikilvægi öruggs sambands með tilliti til öryggis íbúa, vegfarenda og viðbragðsaðila og kallað eftir skýrri og tímasettri áætlun stjórnvalda um úrbætur. Hin ályktunin sneri að áframhaldandi leit að heitu vatni á Gálmaströnd, sem er mikið hagsmunamál fyrir Strandabyggð eins og við vitum. Fyrir mig sem nýjan sveitarstjóra var sérstaklega gagnlegt að taka þátt í þessum vettvangi, kynnast betur samstarfi sveitarfélaganna og sjá þann kraft sem býr í samvinnu Vestfirðinga.

Ég geng því inn í nóvember með mörg verkefni á borðinu og hlakka til áframhaldandi verkefna á komandi mánuðum og ekki síst til áframhaldandi samskipta við íbúa Strandabyggðar.

Bestu kveðjur,

Dagrún Fanný Liljarsdóttir
Sveitarstjóri Strandabyggðar

/cdn/media/Kikrja.jpg?v=1793630548
Til baka í yfirlit