Fara í efni

Dagbók sveitarstjóra - September

02.10.2026
Kæru íbúar Strandabyggðar, Nú er fyrsti heili mánuðurinn minn í starfi sveitarstjóra að baki og ég verð að segja að september hefur verið bæði viðburðaríkur og skemmtilegur. Það sem hefur staðið upp úr er tækifærið til að kynnast fólkinu sem býr og starfar í Strandabyggð, enda er það einmitt stærsti styrkleiki sveitarfélagsins okkar. Hér býr öflugt, hugmyndaríkt og gott fólk sem gaman er að vinna með.
Deildu

Eitt af því sem stóð sérstaklega upp úr í mánuðinum var Gullkistan. Fyrirtæki í sveitarfélaginu opnuðu dyr sínar fyrir gestum og gafst mér þar einstakt tækifæri til að heimsækja fjölmarga staði og hitta mikið af fólki. Fyrir nýjan sveitarstjóra var þetta sannkölluð lukka og ég vil þakka öllum kærlega fyrir hlýjar móttökur. Þetta var frábær viðburður sem ég held að hafi vakið verðskuldaða athygli á þeirri fjölbreyttu starfsemi sem hér er að finna. 

/cdn/media/Gullkistan.jpg?v=1790946871

Það er einnig ánægjulegt að sjá allt það öfluga starf sem er í gangi fyrir börn og ungmenni. Íþróttastarf vetrarins er komið af stað og fjölbreytt úrval stendur til boða, meðal annars hjá Skíðafélaginu, í klifri, fótbolta, íþróttaskóla og íþróttafjöri. HSS hélt barnamót á Grundum þar sem keppt var í langstökki, kúluvarpi, spjótkasti, 60m og 100m hlaupi. Klifurveggurinn opnaði formlega með pomp og prakt og Skíðafélagið stóð einnig fyrir hæfileikamótun í samstarfi við Skíðasamband Íslands í mánuðinum. September endaði svo á Íþróttaviku Evrópu sem mörg á öllum aldri tóku þátt í. Skólastarfið er farið á fullt. Samkennsla skólanna hefur gengið vel og tónlistarskólinn er kominn á fullt með virkilega góða aðsókn. Nokkur ungmenni fóru til Suðureyrar og tóku þátt í Ungmennaþingi Vestfjarða og var Ungmennaráð Strandabyggðar einnig með Ungmennaþing á Hólmavík. Á leikskólanum er einnig líf og fjör og gaman að segja frá því að slökkviliðið kom í heimsókn ásamt sjálfum Björnis brunabangsa sem vakti mikla lukku hjá yngstu íbúunum. 

Ég heimsótti fjölbreytt félagsstarf í september, þar má nefna félagsmiðstöðina Ozon og kynntist því öfluga starfi sem þar er unnið með börnum og unglingum. Þá fór ég á “tölum saman um líðan og tengsl” geðheilsuverkefni sem unnið var með unglingunum okkar í samstarfi við Barnaheill og Geðhjálp. Dagurinn þótti afar vel heppnaður og lauk á því að Unnsteinn Manúel flutti tónlist fyrir þátttakendur. Ég heimsótti einnig eldri borgara í starfi þeirra þar sem ég fékk góðar móttökur og naut samverunnar þar. Þá átti ég einstaklega skemmtilega stund í Einyrkjakaffi í Hnyðju þar sem voru líflegar og skemmtilegar umræður. Heimsóknir sem þessar eru dýrmætar og ég hlakka til fleiri samtala við íbúa í framtíðinni. Við fögnuðum líka komu fjólublás bekkjar við kirkjuna sem tákn vitundarvakningar um heilabilun, það var svo vel að þessu staðið og góð þátttaka og fallegur boðskapur í bekkjagöngunni. 

/cdn/media/Bekkjargangan.jpg?v=1790946911

Við höfum einnig innan sveitarfélagsins verið að vinna áfram að ýmsum þróunar- og uppbyggingarmálum. Þar má nefna vinnu við uppbyggingasamning vegna Hótel Stranda auk þess sem vinna við fjárhagsáætlun næsta árs er nú hafin. Fjárhagsáætlunargerð er eitt af mikilvægari verkefnum haustsins og leggur grunn að starfsemi sveitarfélagsins á komandi ári. 

September ber líka með sér ákveðnar hefðir og því voru réttir víða um sveitarfélagið. Ég heimsótti Skeljavíkurréttir og naut þess að upplifa stemninguna sem fylgir þessum fallega árstíma. 

/cdn/media/Kindur-i-rett.jpg?v=1790946936

Í mánuðinum var haldið landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga á Akureyri þar sem ég sat þingið ásamt oddvita sveitarfélagsins. Þar fóru fram gagnlegar umræður um málefni sveitarfélaga og mörg áhugaverð erindi voru flutt. Þá fór einnig fram fundur í september með þingmönnum í tengslum við kjördæmaviku þeirra þar sem rætt var um hagsmunamál Vestfjarða og sveitarfélaganna á svæðinu. 

Í september hef ég fundað með forstöðumönnum stofnana sveitarfélagsins og hlakka mikið til áframhaldandi samstarfs með því öfluga fagfólki sem þar starfar. Einnig hef ég setið fjölmarga fundi vegna þeirra fjölbreyttu verkefna sem starfinu fylgja. Við á skrifstofunni fengum heimsókn frá Þjóðskjalasafni og lýstu þau yfir mikilli ánægju með aðstöðu, verklag og skjalavinnsluna okkar sem var ánægjulegt að heyra.  

Eins og áður verða sveitastjórn og íbúar upplýstir reglulega um framgang þeirra verkefni sem eru í vinnslu hverju sinni og störf sveitastjóra. Ég hlakka svo til áframhaldandi samstarfs við íbúa Strandabyggðar og kynnast því öfluga samfélagi enn betur sem hèr er.

Bestu kveðjur, 

Dagrún Fanný Liljarsdóttir 
Sveitarstjóri Strandabyggðar 

/cdn/media/Hofnin_2026-10-02-131703_hgdp.jpg?v=1790947023
Til baka í yfirlit