Fara í efni

Dagbók sveitarstjóra

01.09.2026
Sæl kæru íbúar Strandabyggðar
Deildu

Fyrstu tvær vikurnar mínar í starfi sveitastjóra Strandabyggðar hafa svo sannarlega verið viðburðaríkar frá fyrsta degi, ánægjulegar og spennandi. Móttökurnar sem ég, og við fjölskyldan öll, höfum fengið hafa verið einstaklega hlýjar og góðar og er ég innilega þakklát fyrir það. Það er ánægjulegt að geta sagt það frá hjartanu að það er vel tekið á móti nýju fólki hér í samfélaginu. 

Fyrstu vikuna mína í starfi heimsótti ég skólann og leikskólann og kynntist starfsfólki og starfsemi þar. Ánægjulegt að sjá hvað unnið er gott og vel skipulagt fagstarf á báðum stöðum. Ég sat einnig fund með nýjum aðilum í Apótekinu okkar, en Björn kom og kynnti okkur starfið og þjónustuna sem þeir ætla þar að veita, þar sem lögð var áhersla af okkar hálfu að hafa samfellu í þjónustu við eigendabreytingu. Ég mætti á fundi um skólamál, skólaakstur og samvinnu um skólamál og svo kom Landsnet með kynningu um Hvalárvirkjun. Ég fundaði með Oddvita nokkrum sinnum og frábæru starfsfólki skrifstofunnar þeim Salbjörgu skrifstofustjóra og Heiðrúnu verkefnastjóra, vil ég þakka þeim einstaklega vel fyrir faglega aðstoð, góða samvinnu og góðar móttökur. Ég fór svo sem foreldri á skólasetningu í grunnskólanum, en með okkur hjónum fluttu tvö yngstu börnin okkar af fimm, og verður annað þeirra í leikskólanum og hitt í grunnskólanum. Okkur leist stórvel á skólastarfið framundan.

Síðari vikuna nýtti ég enn frekar í að setja mig inn í hluta þeirra fjölbreyttu verkefna sem sveitarfélagið vinnur að. Ég heimsótti helstu stofnanir samfélagsins og starfsmenn þeirra, Sorpsamlagið, áhaldahúsið, félagsheimilið og mötuneytið, íþróttahúsið, sundlaugina og tjaldstæðið og Þróunarsetrið og síðan hitti ég heldri borgara í boccia. Átti ég lífleg, skemmtileg og ekki síst fræðandi samtöl við fólk á öllum stöðum. Ég á enn eftir að heimsækja fleiri staði í samfélaginu á komandi misserum og hlakka til þess. Einnig hafa fjölmargir íbúar komið á máli við mig og kynnt sig og átt góðar samræður. 

Ég ákvað einnig að sitja einhverja nefndarfundi til að koma mér betur inní starfið og málefni, sat fund með velferðarnefnd og síðar aðalfund Félagsþjónustu Stranda og Reykhólahrepps. Einnig sat ég fund með svæðisskipulagsnefnd Vestfjarða ásamt fundi um Sorpsamlagið. Svæðisskipulag Vestfjarða 2025-2050 var undirritað í síðustu viku við minnisvarða um Kollabúðarfundi við Skóga í Þorskafirði, og einnig átti ég gagnlegan og góðan fund með fráfarandi sveitastjóra og þakka ég honum fyrir góða ráðgjöf og gott samtal. Einnig hef ég átt góð samtöl við oddvita/sveitastjóra nágranna sveitafélaga okkar, og hlakka ég til að eiga gott samstarf við þau.

Fjölmörg verkefni eru framundan og hlakka ég til að takast á við þau í nánu samstarfi við íbúa, starfsfólk og kjörna fulltrúa næstu árin.

Takk fyrir góðar móttökur

Dagrún Fanný Liljarsdóttir 

Sveitastjóri Strandabyggðar

Til baka í yfirlit