Fara í efni

Breyting á skólastarfi vegna námskeiðs starfsmanna

23.11.2011
Eins og áður hefur komið fram verður er vikan 23.- 30. nóvember nk. helguð fróðleik um ADHD (semer athyglisbrestur og ofvirkni). Grunnskólinn og Tónskólinn hafa lagt á það ríka áher...
Deildu

Eins og áður hefur komið fram verður er vikan 23.- 30. nóvember nk. helguð fróðleik um ADHD (semer athyglisbrestur og ofvirkni). Grunnskólinn og Tónskólinn hafa lagt á það ríka áhersluallt starfsfólk og foreldrar eigi þess kost að sitja námskeið um ADHD sem framfer á fimmtudag og föstudag. Námskeiðið sem er haldið í fjarfundi fimmtudaginn24. nóvember kl. 13:00-17:00 og framhald verður daginn eftir föstudaginn 25.nóvember frá kl. 10:00-12:00 og frá kl. 13:00-17:00. Því hefur verið tekin ákvörðun umað allt starf í Grunn- og Tónskólanum falli niður frá því að nemendur bekkjardeilda hafa lokið síðustu kennslustundfyrir hádegishlé þessa tvo daga.

 

Kennslu í 1. - 6. bekk lýkur því klukkan 12:20 báðadagana og kennslu í 7. - 10. bekk lýkur því klukkan 11:50  báða dagana. Þeir sem eru að nýta þjónustu mötuneytis á Café Riissnæða hádegisverð áður en þeir fara heim. Skólabílar fara frá Grunnskóla kl. 13:00 þessa daga. Öll starfsemi fellur niður og skólahúsnæðið verður lokað frá kl. 13.

Til baka í yfirlit