Umsóknir skal senda með pósti á skrifstofu Strandabyggðar, Höfðagötu 3, 510 Hólmavík eða í tölvupósti á netfangið strandabyggd@strandabyggd.is, fyrir kl. 14:00 þann 16. desember 2013. Þeim umsækjendum sem þegar eiga umsóknir um leiguhúsnæði er bent á að endurnýja umsóknir sínar samkvæmt reglum, sjá hér að neðan. Sveitarstjórn úthlutar íbúðum samkvæmt reglum sem samþykktar voru í sveitarstjórn 21. júní 2011.
Reglur um útleigu á íbúðarhúsnæði í eigusveitarfélagsinsStrandabyggðar
Samþykktar í sveitarstjórn Strandabyggðar 21. júní 2011
1. Strandabyggð getur leigt út íbúðarhúsnæði í eigu sveitarfélagsins, bæðitímabundið og ótímabundið. Gerðir eru skriflegir samningar við leigutaka og ermiðað við þriggja mánaða uppsagnarfrest af beggja hálfu. Heimilt er að tengjaleigugjald við vísitölu. Leigugjald skal taka mið af verði á almennum markaði ásvæðinu og jafnframt stærð, aldri, gerð og ástandi húsnæðis.
2. Sveitarfélagið áskilur sér rétt til að breyta leiguverði samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnar.Tilkynna skal leigutökum um slíkt áður en breytingin tekur gildi með þriggjamánaða fyrirvara.
3. Sveitarstjórn getur tekið ákvörðun um að selja leiguíbúðir og íbúðarhús íeigu sveitarfélagsins. Skylt er að tilkynna leigutaka um slíka ákvörðun þegarhún liggur fyrir.
4. Þegar íbúðarhúsnæði losnar er meginregla að það tiltekna húsnæði skuliauglýst opinberlega til leigu og óskað eftir umsóknum. Þeir sem þegar hafa lýstyfir áhuga á leiguhúsnæði í eigu sveitarfélagsins þurfa að endurnýja umsóknsína hverju sinni. Miða skal við að auglýsing sé uppi á viðteknum stöðum ísveitarfélaginu og jafnframt birt á vef Strandabyggðar í að minnsta kosti 10daga áður en umsóknarfrestur rennur út. Í einstökum tilfellum getursveitarstjórn vegna sérstakra aðstæðna tekið formlega ákvörðun um aðfyrirkomulag sé annað.
5. Áður en íbúðarhúsnæði í eigu sveitarfélagsins er úthlutað til leigu skalleita eftir umsögn félagsmálastjóra Stranda og Reykhólahrepps um hvort þörf séfyrir úthlutun þess á grundvelli félagslegra aðstæðna og sjónarmiða.
6. Sveitarstjórn skal á fundi sínum fjalla um og úthluta leiguíbúðum samkvæmtfyrirliggjandi umsóknum með hliðsjón af aðstæðum umsækjenda.
7. Fara skal með umsóknir sem trúnaðarmál.
