Sveitarstjórn Strandabyggðar lýsir yfir þungum áhyggjum og leggst eindregið gegn fyrirliggjandi frumvarpi innviðaráðherra sem kveður á um afnám línuívilnunar og skel- og rækjubóta. Þann 26. mars sl. sátu fulltrúar sveitarstjórnar, Vilja Fiskverkunar ehf., hafnarnefndar og hafnarstjóri fjarfund þar sem niðurstaðan var skýr: Verði frumvarpið að lögum er vegið beint að tilverugrunni samfélagsins í Strandabyggð.
Högg sem samfélagið fær ekki risið undir: Bein heilsársstörf við útgerð og vinnslu sjávarafurða í Strandabyggð eru rúmlega 50 talsins og við fyrirhugaðar lagabreytingar munu þessi störf að mestu leggjast niður. Tengd störf svo sem löndun, starfsemi fiskmarkaðar, hafnarþjónusta, , flutningur o.fl. munu dragast verulega saman. Nýstofnuð fiskvinnsla sem sett var á laggirnar eftir stórt högg í atvinnulífi staðarins, er rækjuvinnslan Hólmadrangur lagðist af, mun ekki ná að halda úti heils árs starfsemi og mun þar af leiðandi þurfa að fækka starfsfólki og eiga erfitt með að uppfylla samningsskyldur sínar við Byggðastofnun sem er forsenda þess að sértækt aflamark er boðið hér í Strandabyggð.
Til að setja þetta í samhengi þá búa um 260 manns á vinnualdri í Strandabyggð og þessi 50 störf sem skapast beint af sjávarútvegi eru um fimmtungur starfa í byggðalaginu en þetta er ekki bara tölfræði; barnafjölskyldur munu þurfa að flytja af staðnum vegna skorts á atvinnu á staðnum.
Heilsársstörfum fórnað fyrir tímabundnar veiðar: Línuívilnun og skel og rækjubætur hafa verið grunnstoð í rekstri heilsársútgerða í Strandabyggð.
Í frumvarpi ráðherra er lagt til að þessi heimild verði færð yfir í strandveiðar. Sveitarstjórn bendir á að strandveiðar fara einungis fram hluta úr ári og þeim afla er landað að litlu leyti á Hólmavík til vinnslu. Með því að fórna heilsársútgerð fyrir tímabundnar veiðar er verið að grafa undan stöðugleika samfélagsins.
Við tökum undir með sveitarstjórn Kaldrananeshrepps og bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar: þetta frumvarp er eins og blaut tuska í andlitið. Í stað þess að viðhalda aðgerðum sem raunverulega stuðla að byggðafestu og heilsársstörfum er lagt til að þær aðgerðir séu afnumdar fyrir tímabundnar veiðar, þvert á allar ályktanir og ítrekaðar óskir um samráð.
Gangi frumvarpið eftir mun önnur af tveimur heilsársútgerðum staðarins líklega neyðast til að hætta starfsemi. Það leiðir til þess að afleidd störf hjá fiskmarkaði, flutningsfyrirtækjum og störf sveitarfélagsins við vigtun og löndun dragast verulega saman.
Sveitarstjórn Strandabyggðar krefst þess að ríkisvaldið sýni í verki að það styðji við landsbyggðina með því að tryggja fyrirsjáanleika og vernda byggðafestu í sjávarbyggðum.
Sveitarstjórn Strandabyggðar varar við því að auka tímabundnar veiðar á kostnað traustra heilsársstarfa í litlum sjávarbyggðum
Sveitarstjórn Strandabyggðar
