Álagning fasteignagjalda 2026 er í lokavinnslu. Allar óskir um breytingar v. úrgangsmála þurfa að berast í síðasta lagi 1. febrúar á netfangið strandabyggd@strandabyggd.is. Hægt er að sækja um niðurfellingu á gjaldi vegna lífúrgangs ef notast er við aðrar viðurkenndar leiðir til förgunar lífúrgangs. Í þeim tilfellum verður lífúrgangur ekki sóttur á viðkomandi heimili. Einnig geta íbúar samkvæmt lögum nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs og Reglugerð nr. 803/2023 um meðhöndlun úrgangs sótt um sameiginlega söfnun úrgangs á aðliggjandi lóðum. Það er gert hjá skrifstofu Strandabyggðar strandabyggd@strandabyggd.is. Íbúar beggja heimila þurfa að vera samþykkir því og senda inn sameiginlega beiðni. Allar breytingar sem berast eftir 1. febrúar bera breytingargjald kr. 4000.
Söfnun lífúrgangs hefur farið vel af stað og á meðfylgjandi mynd má sjá jarðgerðarvélina Mega Reencle sem tekur 100 kg á dag. Hún er staðsett í móttökutökustöð Sorpsamlagsins á Skeiði og moðar vel úr því sem hún fær. Þegar vorar ættu íbúar að geta nýtt sér jarðgerðarefnið sem til fellur við úrvinnsluna. Vélin er ekki komin með nafn og allar hugmyndir eru vel þegnar. Við bendum einnig á að hægt er að skila lífúrgangsfötum í móttökustöð Sorpsamlagsins á daginn og fá nýja fötu eða hringja í vaktsíma áhaldahúss 835-3396.
