Álagningu fasteignagjalda 2026 er lokið og kröfur hafa verið sendar í heimabanka. Álagningaseðlar munu birtast á island.is í lok vikunnar. Íbúar sem óska eftir útprentuðum álagningaseðli geta sent póst á strandabyggd@strandabyggd.is. Ef breyta þarf gjaldanda eða ef um rangskráningu er að ræða má sömuleiðis hafa samband á sama netfang eða í síma 451-3510
