Í sumar verður Ágúst Brynjarsson á tónleikaferð um landið undir heitinu Ágúst á ferðinni, með það að markmiði að heimsækja sveitarfélög víðsvegar um landið og halda heildstæða menningarupplifun fyrir alla aldurshópa.
Ágúst skaust upp á stjörnuhimininn eftir að hann tók þátt í söngvakeppni sjónvarpsins 2025 en hann er einnig þekktur fyrir að spila með hljómsveitunum Stuðlabandinu og Færibandinu. Ágúst gaf nýlega út sólóplötuna Hjartað á milljón og hefur lagið, Inn í síðustu nóttina, sem hann flytur með Unu Torfa, hefur verið í mikilli spilun undanfarið. Ágúst mun sjá um brekkusönginn á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum 2026.
Fimmtudaginn 18. júní mun Ágúst halda tónleika í félagsheimilinu á Hólmavík, eða utandyra ef veður leyfir. Tónleikarnir byrja kl. 18:00 og er aðgangur ókeypis. Ágúst mun einnig koma fram á grilldegi leikskólans föstudaginn 19. júní og heimsækja heimilisfólk á HVE á Hólmavík. Samhliða tónlistardeginum mun Ágúst taka upp þætti tengda hverju bæjarfélagi, sem munu birtast á samfélagsmiðlum og vonandi víðar. Við vonumst eftir skemmtilegri bæjarstemmingu. Heimsókn Ágústs er í boði Strandabyggðar og með stuðningi starfmannafélags Orkubús Vestfjarða og Café Riis.
