Dagarnir 23. - 30. nóvember íGrunnskólanum á Hólmavík verða helgaðir fróðleik um ADHD, sem erathyglisbrestur og ofvirkni. Skipulagning stendur yfir og munum við, Hildur Guðjónsdóttirog Jóhanna Hreinsdóttir, annast undirbúninginn í samvinnu við starfsmennskólans, foreldra og aðra áhugasama. Markmið með verkefninu er að auka fræðslu og skilning okkar á ADHD röskun semleiðir til betri hegðunar, líðan og viðhorfi allra í samfélaginu. Við viljumbyggja upp jákvætt og uppbyggjandi umhverfi fyrir einstaklinga með ADHD þannigað þeir fari út í framtíðina með góða sjálfsmynd sem er forsenda velgengni. Viðviljum stuðla að því að því að börnin bíði ekki stöðuga ósigra í daglegu lífiheldur mæti stuðningi og umfram allt skilningi. Við berum öll ábyrgð og getumlagt okkar að mörkum með því að sýna jákvætt viðmót, hrós og viðurkenningu áADHD.
Í ADHD vikunni ætlum við að reyna að auka vitund og fræðslu um ADHD með því aðvirkja alla nemendur og starfsfólk Grunnskólans á Hólmavík þannig að allirleggi eitthvað að mörkum til vitundarvikunnar. Við ætlum að vinna meðviðfangsefnið á heildstæðan hátt og samþætta það hluta af námi og kennsluskólans í eina viku. Í tilefni af ADHD vikunni stöndum við fyrir námskeiðinu Skólaganga barna meðathyglisbrest og ofvirkni, námskeið fyrir kennara og annað starfsfólkgrunnskóla. Námskeiðið verður haldið í fjarfundi. Kennslu í 1. - 6. bekk lýkur því klukkan 12:20 á fimmtudag og föstudag og kennslu í 7. - 10. bekk lýkurklukkan 11:50 báða dagana.
