Kæru íbúar Strandabyggðar,
Það var sérlega skemmtilegur hópur sem kíkti á skrifstofu sveitarfélagsins, með mjög vel ígrundaðar hugmyndir og ábendingar um uppbyggingu á leikskólalóðinni. Og allt var þetta sett fram í máli og myndum. Þarna voru m.a. hugmyndir um hjólagarð með alvöru húsi, alvöru búð og alvöru snakki, rafmagnsbíl sem krakkarnir keyra sjálf, köngulóarrólu, hús (plathús) þar sem maður ýtir á takka og þá hoppar maður, sandkassa með rauðum takka á múrsteini svo hann opnist, drullumall, göng sem hægt er að hjóla í gegnum, hjólabrettagarð, rennibraut þar sem maður rennur í hringi og rennibraut sem er löng og með hossum en fer ekki í hringi og margar aðrar góðar hugmyndir. Mjög efnilegur hópur þarna á ferð.
Myndirnar sýna krakkana á leiðinni með umslagið góða og svo þegar þau afhenda hugmyndirnar sínar. Hjördís Inga Hjörleifsdóttir, starfsmaður Félagsþjónustu Stranda og Reykhóla, var með mér í móttökunefndinni. Starfsfólk Lækjarbrekku og foreldrar barna á leikskólanum, hafa einnig komið að hugmyndavinnu um nýja leikskólalóð.
Takk fyrir komuna og þessa flottu vinnu krakkar!
Kveðja
Þorgeir Pálsson
oddviti
Ábendingar frá leikskólabörnum
20.10.2022
Kæru íbúar Strandabyggðar,Það var sérlega skemmtilegur hópur sem kíkti á skrifstofu sveitarfélagsins, með mjög vel ígrundaðar hugmyndir og ábendingar um uppbyggingu á leikskólaló...
