Sveitarstjórn Strandabyggðar býður til fundar með bændum í sveitarfélaginu, miðvikudaginn 19. nóvember n.k. kl 17-19 í Sauðfjársetrinu. Þar verður farið yfir sameiginleg hagsmunamál er varða girðingarmál og fjallskil og lögð fram tillaga um stofnun Fjallskilanefndar. Eins verður tekið á nokkrum álitamálum sem bændur lögðu fyrir sveitarstjórn fyrr á árinu. Við vonumst eftir góðri mætingu og málefnalegri umræðu.
Fundur með bændum
14.11.2025
Sveitarstjórn Strandabyggðar býður til fundar með bændum í sveitarfélaginu
