A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Uppeldi sem virkar – færni til framtíðar

| 16. febrúar 2017

Haldið verður uppeldisnámskeið fyrir foreldra á Hólmavík. Námskeiðið er  frá Miðstöð Heilsuverndar barna og hefur verið haldið þar og víða um land undanfarin ár.  

Námskeiðið er byggt á bókinni Uppeldisbókin – Að byggja upp færni til framtíðar.  Útgáfa bókarinnar og hönnun námskeiðsins er styrkt af Forvarnasjóði. Höfundur námskeiðsins er Dr. Gyða Haraldsdóttir sálfræðingur sem starfar á Miðstöð Heilsuverndar barna.

Námskeiðið er  tvo tíma í senn í fjögur skipti og verður haldið á þriðjudögum kl. 16:30-18:30 í Hnyðju. Námskeiðið hefst 21. febrúar og verður 28. febrúar, 7. mars og 21. mars.

Foreldrar barna á leikskólaaldri ganga fyrir með þátttöku.

Skráning í síma 842-2511 eða á netfangið felagsmalastjori@strandabyggd.is

Námskeiðið er kostað af Strandabyggð en foreldrar þurfa að greiða námskeiðshefti. Hægt er að kaupa Uppeldisbókina á námskeiðinu.

Kennari á námskeiðinu er María Játvarðardóttir félagsráðgjafi MA.

 

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón