A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Sundmót UDN og HSS á Reykhólum

| 13. október 2011
Merki HSS - tekið af 123.is/hss
Merki HSS - tekið af 123.is/hss

Sameiginlegt sundmót UDN og HSS verður haldið í Grettislaug á Reykhólum þriðjudaginn 18. október nk. Mótið hefst kl. 17:00 og eru allir boðnir hjartanlega velkomnir. Þeta er tilvalið tækifæri fyrir krakka á Ströndum (og alla þá fullorðnu líka) til að sýna hvað í þeim býr, en sundkennsla hefur verið í gangi í nokkrum grunnskólanna á starfssvæði HSS undanfarnar vikur. Menn ættu því að vera í góðu formi.

Umf. Afturelding í Reykhólahreppi verður með pylsur og svala til sölu og því er um að gera að smella sér yfir nýja veginn okkar, keppa í sundi og eiga góðan dag. Skráning fer fram í síma 690-3825 (Herdís). Vinsamlegast skráið ykkur tímanlega!

Greinarnar á mótinu eru eftirfarandi:  
8 ára og yngri  - 25 m bringusund og 25 skriðsund  
9-10 ára - 25 m bringusund,  25 m baksund og 25 m skriðsund  
11- 12 ára  - 50 m bringusund, 25 m baksund, 50 m skriðsund og 25 m flugsund  
13-14 ára - 50 m bringusund, 50 m baksund, 100 m bringusund, 50 m skriðsund og 25 m flugsund  
15-16 ára - 50 m bringusund, 50 m baksund, 200 m bringusund, 50 m skriðsund og 25 m flugsund  
17 ára og eldri - 50 m bringusund, 50 m baksund, 200 m bringusund og 50 m skriðsund  
100 m fjórsund (4x25m) flugsund, baksund, bringusund, skriðsund.  
4x50 m boðsund
 

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón