A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Sumarstörf í Strandabyggð 2017

| 03. mars 2017

Sveitarfélagið Strandabyggð auglýsir eftir starfsmönnum í sumarstöf hjá stofnunum sveitarfélagsins sumarið 2017. Um er að ræða eftirtalin störf:

Íþróttamiðstöð Strandabyggðar

Áhaldahús Strandabyggðar

Umsjón með sumarnámskeiði

Umsjónarmaður Vinnuskóla Strandabyggðar

Liðveisla með fötluðum börnum
Starf í búsetu með fatlaðri konu

 

Upplýsingar um öll störfin má nálgast hér.

Ungmennum yngri en 18 ára er bent á að sækja um Vinnuskóla en þau störf verða auglýst í apríl.

Umsóknum skal skilað á skrifstofu Strandabyggðar að Höfðagötu 3 og er umsóknarfrestur til og með 20. mars 2017. Jafnframt er hægt að senda umsóknir í tölvupósti á netfangið strandabyggd@strandabyggd.is. Á umsókn skal koma skýrt fram um hvaða starf er sótt. Ef sótt er um fleiri en eitt starf skal koma fram hvaða starf er fyrsti valkostur og hvað er til vara. Jafnframt skal taka fram ef viðkomandi getur ekki unnið allt sumarið og þá hvenær starfsmaðurinn þarf frí.

Athugið að Strandabyggð er tóbaks- og vímuefnalaus vinnustaður.

 

Umsóknareyðublöð um störf hjá Strandabyggð má finna hér.

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón