Fara í efni

Sumarstörf hjá Áhaldahúsi Strandabyggðar

08.04.2014
Áhaldahús Strandabyggðar auglýsir laus störf sumarið 2014. Um fjölbreytt og skemmtileg verkefni er að ræða sem fara að mestu fram utandyra:
Deildu
Áhaldahús Strandabyggðar auglýsir 3 laus störf sumarið 2014. Um fjölbreytt og skemmtileg verkefni er að ræða sem fara að mestu fram utandyra:
  • Hreinsunarstörf og tiltekt
  • Málningarvinna
  • Lítilsháttar sláttur
  • Aðstoð við Vinnuskóla Strandabyggðar
  • Aðstoð við Hamingjudaga
  • Ýmis önnur tilfallandi verkefni

Vigtarréttindi koma sér vel. Gerð er krafa um dugnað, sjálfstæð vinnubrögð, góð samskipti og ríka þjónustulund.
Umsóknum skal skila á Skrifstofu Strandabyggðar að Höfðagötu 3, og er umsóknarfrestur til og með 16. apríl nk. Einnig er hægt að senda umsóknir í tölvupósti á netfangið strandabyggd@strandabyggd.is 

Umsóknareyðublöð um störf hjá Strandabyggð má sjá neðst til hægri hér á síðunni.

Til baka í yfirlit