A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Strandabyggð tekur þátt í Jarðarstund - Earth hour

| 23. mars 2017

Þann 25. mars. nk. á milli kl.20:30-21:30 er stund sem kallast Jarðarstund.  Markmið Jarðarstundar er að hvetja íbúa heims til aðgerða gegn loftlagsbreytingum með því að slökkva ljósin í eina klukkustund og sýna þannig fram á vitundarvakningu.

Náttúruverndarsamtökin World Wildlife Fund skipulögðu Earth Hour í fyrsta sinn árið 2007 með því að ljósin voru slökkt í einni borg, Sydney í Ástralíu. Jarðarstundin á því 10 ára afmæli árið 2017. Í dag erum  7,000 borgir í 178 löndum sem hafa látið vita um þátttöku og er því  um að ræða eitt fjölmennasta samstillta einstaklingsátak á sviði umhverfisvakningar í heiminum að. Flest sveitarfélög á Vestfjörðum ætla að taka þátt í Jarðarstund í ár en bæði einstaklingar, félög borgir og bæir geta tekið þátt og skráð viðburð á earhhour.org.

Allir eru hvattir til að taka þátt í Jarðarstundinni og kveikja ekki á rafmagnsljósum milli kl. 20:30 og 21:30 laugardaginn 25. mars. Njótum myrkurs, skoðum stjörnurnar og kveikjum svo á kertum og hugsum um hvað við getum lagt af mörkum til að bæta umhverfið og vinna gegn loftslagsbreytingum.

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón