A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Störf til umsóknar í leikskólanum Lækjarbrekku

| 09. ágúst 2011
Mynd: IV
Mynd: IV
Leikskólinn Lækjarbrekka auglýsir eftirfarandi störf:

Nýtt starf
Leikskólinn Lækjarbrekka auglýsir nýtt starf matráðs og ræstitæknis. Um er að ræða 100% starf frá kl. 08:00 - 16:00.

Afleysingar
Auglýst er eftir starfsfólki í afleysingar á leikskólann Lækjarbrekku.

Leitað er eftir öflugu starfsfólki sem hefur gaman af börnum, býr yfir góðri samskiptahæfni og hefur ríka þjónustulund. Einnig er skipulagshæfni og jákvæðni mikilvægur kostur.

Nánari starfslýsingar er hægt að nálgast á skrifstofu leikskólastjóra eða í síma 451 3411. Einnig er hægt að senda tölvupóst á leikskólastjóra í netfangið: leikskolastjori@holmavik.is

Umsækjendur eru beðnir um að skila inn umsóknum á skrifstofu sveitarfélagsins að Höfðagötu 3, ásamt ferilskrá og meðmælendum fyrir kl. 12:00 föstudaginn 12. ágúst 2011. Þeir sem eiga eldri umsóknir um störf á leikskólanum Lækjarbrekku eru beðnir um að endurnýja umsóknir sínar.

Skólastjórar áskilja sér rétt til að hafna öllum umsóknum standist þær ekki kröfur.

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón