A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Starf á tómstundasviði

| 20. ágúst 2014
Óskað er eftir starfskrafti í hlutastarf í félagsmiðstöðina Ozon. Umsóknir um starfið berist á þar til gerðu formi (http://www.strandabyggd.is/stjornsysla/umsoknir/skra/430/) á netfangið tomstundafulltrui@strandabyggd.is eða á skrifstofu Strandabyggðar eigi síðar en miðvikudaginn 27. ágúst.

Um er að ræða starf frístundaleiðbeinanda með börnum á miðstigi og unglingum. Starfið fer að mestu eða öllu leiti fram á kvöldin og um helgar. Lágmarksaldur í starfið er 20 ár og litið verður til þess að starfsfólk félagsmiðstöðvarinnar ætti að vera sem fjölbreyttast. Tómstundafulltrúi áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum, uppfylli þær ekki skilyrði.

Esther Ösp Valdimardóttir, tómstundafulltrúi, veitir allar nánari upplýsingar.

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón