A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Stærsti íþróttaviðburður á Ströndum

| 15. mars 2012
Stærsti íþróttaviðburður á Ströndum, hin árlega Strandaganga Skíðafélags Strandamanna, fer fram í Selárdal við Hólmavík á laugardag. Keppt verður í 5 km, 10 km og aldurskipti 20 km göngum, auk þess sem stelpur og strákar 12 ára og yngri geta keppt í 1 km göngu. Þá verður einnig keppt í sveitakeppni í öllum vegalengdum, en hún fer þannig fram að þriggja manna lið ganga sömu vegalengdina og samanlagður tími þeirra gildir. Ræst verður í 1 km gönguna klukkan 12.20 og í aðrar vegalengdir klukkan 13.00.
 

Kaupfélag Steingrímsfjarðar á Hólmavík styrkir gönguna með kaupum á verðlaunagripum. Sá sem verður fyrstur í mark í 20 km göngunni hlýtur einnig að launum veglegan farandbikar sem gefinn var af Heilbrigðisstofnun Hólmavíkur til minningar um Sigfús Ólafsson heimilislækni.
 

Skráning fer fram á staðnum milli klukkan 11:30 og 12:20 eða á netfangið sigrak@simnet.is . Þátttökugjald er 3.000 krónur fyrir 16 ára og eldri og 1.000 krónur fyrir 15 ára og yngri.

Frétt af www.strandir.is

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón