A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Sjálfboðaliðar óskast til að sjá um SEEDS verkefni

| 10. febrúar 2012
Sjálfboðaliðahópur frá SEEDS á Hólmavík.
Sjálfboðaliðahópur frá SEEDS á Hólmavík.
Sveitarfélagið Strandabyggð auglýsir eftir sjálfboðaliðum til að sjá um SEEDS verkefni sumarið 2012. SEEDS eru íslensk frjáls félagasamtök sem taka á móti erlendum sjálfboðaliðum til þess að sinna umhverfis- og menningarmálum í samstarfi við sveitarfélög, samtök og einstaklinga. Árið 2011 tókum við á móti 1000 manns í um 100 mismunandi verkefni víðsvegar um landið sem tengdust öll umhverfi eða menningu á einn eða annan hátt. Verkefnin voru meðal annars hreinsun strandlengjunnar t.d á Langanesi, Arnarfirði, Reykjanesskagaog Viðey, gróðursetning í Dýrafirði og Bláfjöllum, lagning og viðhaldgöngustíga m.a í Vatnajökulsþjóðgarði, Þórsmörk og Fjarðabyggð, aðstoð við ýmsar hátíðir og menningaratburði víðs vegar um landið, viðhald minja og fornleifa, torfvinna ásamt ýmsu fleiru. SEEDS samtökin voru stofnuð haustið 2005 og hafa SEEDS hópar unnið fjölmörg uppbyggileg verkefni í Strandabyggð í gegnum tíðina.

Sveitarfélagið Strandabyggð auglýsir eftir áhugasömu og öflugu fólki sem er tilbúið til að taka að sér sjálfboðahóp frá SEEDS í eina viku sumarið 2012:

- Umsjón með skipulagningu SEEDS verkefnisins í samráði við sveitarstjóra
- Umsjón og ábyrgð á sjálfboðaliðahópnum allan þann tíma sem hann dvelur á Ströndum
- Koma með tillögur að verkefnum sem hópurinn getur unnið að í Strandabyggð sumarið 2012
- Annað sem til fellur vegna verkefnisins

Tekið verður á móti umsóknum merktum SEEDS 2012 í netfangið strandabyggd@strandabyggd.is eða á skrifstofu Strandabyggðar til kl. 12:00 á hádegi föstudaginn 24. febrúar 2012.




Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón